Mímir - 01.06.1981, Page 23

Mímir - 01.06.1981, Page 23
Morkinskinnu er hann skrifar Heimskringlu sína. John Lindow telur þessi atriði hafa mikla þýðingu og hann setur fram kenningu sem byggir á þeim: „Perhaps this independ- ence was never completely forgotten, and so through a semantic shift þáttr „part11 could ultimately designate a text for itself, inde- pendent of its context“ (Lindow ’78:38). Hvort sem kenning Lindows reynist rétt eða ekki, má telja sennilegt að eitthvert merkingarugl hafi átt sér stað. Á 18. öld er orðið „táttur“ í færeysku í senn notað yfir hluta úr kvæði og sjálfstæðan söng. Ekki er óeðlilegt að hugsa sér, vegna þess hversu merkingarnar voru margar, að hér hafi ríkt svipað ástand. Þáttr gæti þá hafa merkt hvort tveggja, stutt frásögn og tiltölulega sjálfstæður frásagnarliður úr stærri heild. Hvað eru þættir? Bjarni Guðnason skrifar um þætti í Kultur- historisk leksikon for nordisk middelalder, er þar að finna geysimiklar upplýsingar um þættina sem bókmenntagrein. Bjarni skil- greinir þætti sem ,,korte novellistiske fortæll- inger, der især handler om islændinge“ (B. Guðnason ’76:406). Um þessa skilgreiningu geta allir verið sammála og eins hina efnis- legu tvískiptingu, þ.e. 1. þættir sem gerast utan íslands (aðallega við hirðir norskra konunga), 2. þættir sem gerast á íslandi. Fyrri flokkurinn er mun stærri og flestar þeirra sagna fjalla um skipti íslenskra manna við Harald harðráða og Ólafana tvo. Þeir sem ekki líta á þættina sem sérstaka bók- menntagrein telja gjarnan fyrri flokkinn til konungasagna en hinn síðari til Islendinga- sagna. Þessi greining á sér vart marga for- mælendur nú, en hún er þó í fullu samræmi við þá hefð að flokka fornsögurnar aðallega eftir samstæðu efni. Þættir hafa einnig í heild verið flokkaðir með Islendingasögum, vegna þess að venjulega er Islendingurinn aðalpersónan en konungurinn í minna hlut- verki (B. Guðnason ’76:406). Herbert S. Joseph hefur sagt um þættí: „one may find that they echo in one place or another every sentiment, mood, event, expression and con- vention present in saga literature“ (Joseph ’72:90). Hann vitnar í þessu sambandi til athugana Wolfgang Lange, þar sem Lange fullyrðir að flestir flokkar fornsagna eigi sér efnislega samsvörun í þáttunum. Lange set- ur upp hliðstæður eins og ættarsögur-ættar- þættir, skáldasögur-skáldaþættir, fornaldar- sögur-fornaldarþættir og konungasögur-þætt- ir um samskipti íslenskra manna og erlendra konunga (Joseph ’72:90—91). Þættir eru sem bókmenntagrein eldri en Islendingasögur. Það er þó ljóst að á síðari stigum sagnaritunarinnar hafa áhrifin verið gagnkvæm. I sambandi við þetta má benda á sem dæmi að fullvíst er að Bandamannasaga hefur þegið af Ölkofraþætti en það er jafn víst að Þorsteins þáttur stangarhöggs byggir á Vopnfirðingasögu, m.a. er bein vísun til bardagans í Böðvarsdal (J. Kristjánsson ’78: 348). Um eiginlegan fjölda þátta er erfitt að fullyrða nokkuð. Kemur þar tvennt til, ann- arsvegar hefur bókmenntagreinin verið afar óljóst mörkuð og hinsvegar eru rannsóknir ónógar. I síðari prentun íslendingasagnaút- gáfu Sigurðar Kristjánssonar, er safnað sam- an 42 þáttum, en þá tölu má auðveldlega hækka. Wolfgang Lange hefur getið sér þess til að Islendingaþættir séu alls yfir 100 (Harris ’72:2). Viðhorf fræðimanna til þátta. Það má með sanni segja að þættir hafi jafnan staðið nokkuð í skugga Islendinga- sagna. Þættir hafa aðallega verið athugaðir í því augnamiði að komast nær uppruna ís- lendingasagna og jafnvel konungasagna. Á síðari helmingi aldarinnar sem leið var lagð- ur grundvöllur að þeirri kenningu sem jafn- an er kölluð þáttakenningin. Kenning þessi byggir á þeirri staðreynd að íslendingasög- urnar hlytu að vera samsettar úr smærri ein- 21
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Mímir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.