Mímir - 01.06.1981, Page 52

Mímir - 01.06.1981, Page 52
hvernig málpólitík eigi að reka, hvort stýra eigi tungumálinu inn á einhverjar fyrirfram ákveðnar brautir, eða láta það þróast að miklu leyti sjálfkrafa og án verulegra utan- aðlromandi afskipta. Hér á landi hefur fyrri kosturinn verið val- inn. Á markvissan hátt hefur verið reynt að stöðva hina eðlilegu sjálfþróun íslenskunnar og koma á einhvers konar ,,fyrirmyndar“ málfari, þar sem helsta eftirdæmið hefur ver- ið mál Islendingasagna. Þessi miðstýring sem gengið hefur undir ýmsum fögrum nöfnum svo sem málvöndun, málhreinsun eða mál- vernd er þannig viðleitni í að ,,leiðrétta“ þær breytingar sem orðið hafa á íslensku máli frá dögum Snorra Sturlusonar og Njáluritara, slíta málið úr tengslum við þann samfélags- veruleika sem lífsmagn þess og endurnýjunar- hæfni er komið undir, en staðsetja það í kyrrstæðum og að mörgu leyti ímynduðum fortíðarheimi. Þannig felst býsna harkaleg mótsögn í ríkjandi málpólitík. Að nafninu til er mark- mið stefnunnar að rækta og vanda íslenskt mál, en í raun og veru er því vísað út á guð og gaddinn. I stað þess að viðurkenna breytt- ar aðstæður, dauða sveitamenningarinnar og þar með örfok þess jarðvegs sem rætur máls- ins stóðu til skamms tíma í, láta hinir sjálf- skipuðu krossfarar engan bilbug á sér finna í hinu heilaga stríði og kjósa málinu fremur dauða (því kvrrstætt mál er dautt mál), en að það falli í munn hins spillta nútímaís- lendings sem einn gæti þó veitt því viðunandi lífsskilyrði. Það segir kannski sína sögu um kreppu hreintungustefnunnar að Halldór Laxness, sá rithöfundur sem átt hefur hvað mestan þátt í endurnýjun íslensks ritmáls, mátti lengi vel sitja undir þeim áburði mál- hreinsunarmanna að hann kynni ekki ís- lensku. Og ,,reykvískan“, tungutak meiri- hluta landsmanna er jafnvel enn í dag skil- greind sem ,,götumál“ eða ,,skrílmál“ og tal- in bera vitni um fátæklega hugsun. Hér erum við komin að þeim þætti sem hefur verið hvað mest einkennandi fyrir ís- lenska málpólitík, umburðarleysi hennar og brennimerkingaráráttu. Þetta óskemmtilega birtingarform málvöndunar á eins og stefn- an sjálf uppruna sinn að rekja til sjálfstæðis- baráttu íslendinga. Meðan sú barátta stóð í algleymingi var kannski skiljanlegt að menn beittu öllum brögðum við að hreinsa málið af erlendum áhrifum; hið sérstæða tungumál okkar var jú einmitt eitt helsta réttlætingar- atriðið fyrir kröfunni um þjóðlegt sjálffor- ræði. Nú mörgum áratugum síðar er þetta þjóðernisofstæki, og reyndar málpólitíkin sem slík, einungis dapurleg tímaskekkja sem ber að leiðrétta. Enn í dag er þessi stefna þó að mestu levti hafin yfir gagnrýni og þeir merktir ó- þjóðlegir, óhreinir eða sjúkir sem víkja út af hinu gullna einstigi og tjá sig á þann hátt sem þeim er nærtækastur. Hefur þessi brenni- merking ekki síst bitnað á þeim sem enga aðstöðu hafa haft til að afla sér menntunar og læra ,,rétta“ íslensku. Enda virðist það augljóst mál að íslenskuna er ekki lengur að finna meðal fólksins, heldur einungis í kennslubókum í málfræði. Þetta vita að minnsta kosti þeir sem hlusta að staðaldri á útvarpsþáttinn „Daglegt mál“, þar sem þeir örfáu menn ráða ríkjum sem enn hafa ekki smitast af hinni landlægu þágufallssýki og álíta það siðferðilega skyldu sína að hjúkra hinum hrjáðu. En hver er þá staða íslenskunnar nú á dögum. í raun og veru veit það enginn, því málfræðingar hafa verið svo uppteknir í forna málinu og að verja það fvrir skrílnum að þeir hafa ekkert mátt vera að því að rann- saka íslenskt nútímamál. Það segir kannski ekki mikið um stöðu nútímamálsins, en það er að minnsta kosti athyglisvert að ritmál okkar 20. aldar manna virðist líkara ritmáli 13. aldar en þeirrar sautjándu. Spurningin er svo sú, hvort 17. aldar málið hafi verið ó- venju slæmt, eða hvort nútímaritmál sé ein- faldlega svona gamaldags (og þá gott). Ann- 50
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Mímir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.