Mímir - 01.06.1981, Page 93

Mímir - 01.06.1981, Page 93
er því best að byrja á að líta aðeins á þann heim sem þær lifa í, heim hetjusögunnar. Hetjubókmenntir verða yfirleitt til, þrosk- ast og dafna, í samfélögum sem leggja mikið upp úr hermennsku og hreysti, svo sem við hirðir konunga. Efnivið sinn sækja þær oft til liðinna umbrotatíma. Sögur eru spunnar um fræga herkonunga og kappa þeirra, og í minn- ingunni safna þeir sífellt um sig fleiri afreks- mönnum og hetjum3) og sögurnar aukast að vöxtum þegar á líður. Þannig héldu hinar germönsku sögur um hetjur þjóðflutninga- tímanna áfram að vaxa og mótast löngu eftir að þeir voru afstaðnir. Sögurnar mótuðust samkvæmt ákveðinni frásagnarhefð, persón- ur þeirra komust í bland við goð og vættir og hættu smám saman að snerta jörðina, urðu goðum líkar og hátt hafnar yfir allt venjulegt mannlíf. Það sama má segja um hetjur Hómers. Upphaflega eiga þær að hafa tilheyrt samfélagi hins mykeanska víkinga- tíma, en í sögunum voru þær hafnar upp á æðra svið, hetjusviðið, sem sveif í loftinu einhversstaðar milli jarðarinnar og bústaða hinna sælu guða. Jafnframt því að hetjusagan á rætur í um- brotum sögunnar, sækir hún til helgiathafna og trúarbragða frumstæðra þjóða eins og komið verður að síðar. Og jafnvel þótt ein- hverjir þeir kappar sem hetjusögurnar segja frá hafi verið til í raun og veru, segja sögurn- ar oklcur trúlega lítinn sannleik um þá sjálfa eða þá tíma sem þeir lifðu á. Ymislegt í kvið- um Hómers vísar t.d. fremur til hans eigin tíma (um 800 f.kr.) heldur en mykeanska tímans (um 1200 f.kr.), svo sem herstjórnar- list sú og þeir stjórnarhættir sem kviðurnar lýsa. Enda er hetjusagan bókmenntaform sem á lítið skylt við sagnfræði. Það er því álíka óeðlilegt að líta á þær sem vitnisburð um ein- hverja löngu liðna hetjuöld eins og ef bók- menntafræðingar framtíðarinnar ályktuðu, út frá leynilögreglusögum nútímans, að síðustu hundrað árin hafi verið einhvers konar „lög- regluöld“. Því þótt sjálfsagt eigi bæði hetju- sagan og leynilögreglusagan rætur í því þjóð- félagi sem skapar þær er engan veginn þar með sagt að þær gefi neina raunsanna mynd af því. Hvarvetna þar sem hetjusögur (í þeirri merkingu sem orðið er notað hér) eru til, hafa þær þróast munnlega. Þetta á jafnt við um norræn Eddukvæði, forngrísk epos, norð- ur-amerískar landnemasögur úr villta vestr- inu og íslenskar þjóðsögur um Gretti sterka. Þegar sögurnar eru sagðar er sögumaður um margt í svipaðri aðstöðu og barnfóstra sem segir krökkum söguna um Búkollu eða Rauð- hettu í hundraðasta skipti. Áheyrendur þekkja söguefnið. List sögumannsins er fólg- in í því að segja skemmtilega frá, en hann er bundinn við vissa atburði sem eru áheyrend- um vel kunnir. Þess vegna semur hann ekki söguna í sama skilningi og rithöfundar nú- tímans, heldur er um að ræða samband túlk- andi og skapandi listar. Áberandi einkenni hetjusagna er það, að þótt sagt sé frá stórorrustum og öðrum merk- isviðburðum í sögu þjóðar, er áherslan jafnan á einstaklingnum, hetjunni. Ekkert ber á við- leitni til að upphefja eina þjóð á kostnað ann- arrar, heldur er hetjan upphafin sem einstakl- ingur. Og aðalandstæðingur hennar er gjarna upphafinn líka, því hetjan verður að eiga sér verðugan andstæðing, sem annað hvort hlýt- ur þá að vera önnur hetja, ekki minni, eins og Hektor sem er andstæðingur Akkillesar, eða einhver ómennsk forynja eins og Fáfnir eða þeir miður þokkalegu gripir sem Bjólfur átti í höggi við. Nú kynni einhver að bera á móti þessu og benda t. d. á Eneasarkviðu sem dæmi þess að ein þjóð sé upphafin á kostnað annarrar. En þá er því til að svara, að með „hetjusögu“ er hér átt við sögu sem er upp- haflega orðin til innan munnlegrar hefðar, en ekki skáldverk eins höfundar, eins og Eneas- arkviða Virgils óneitanlega er. Hitt er svo annað mál, að sem tímar liðu og ýmsar þjóðir fengu þá flugu að þær væru öðrum þjóðum betri, var farið að nota hetjubókmenntirnar 91
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Mímir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.