Mímir - 01.06.1998, Page 37

Mímir - 01.06.1998, Page 37
37 samhljóða voru heldur fleiri, 81 á móti 68 kvenmannsgælunöfnum með tvöföldun.Sjá töflu 1 hér að aftan. 4.2.2 Tvöföldun samhljóðs þar sem tvö koma til greina Þegar tvö samhljóð koma á eftir sérhljóð- inu sem notað er í gælunafninu er annað yflr- leitt fellt brott og hitt notað, ýmist tvöfaldað eða ekki. Þegar fyrra hljóðið hefur verið fellt brott en hið síðara notað til myndunar gælu- nafns var það greint sem samhljóðabreyting. Til dæmis má nefna að slíkt gerist í myndun Kriti af Kristján/Kristinn, Aubý - Auðbjörg, en algengara er að það gerist í gælunöfnum sem verða til með tvöföldun, t.d. í Addi -Andr- és, Bjöggi - Björgvin, Kalli - Karl, Stakki - Starkaður, Hjödda - Hjördís, Magga - Mar- grét, Kitta - Kristín, Obba - Þorbjörg. Athyglisvert er að skoða hvort finna megi reglu í því hvort samhljóðið lengist ef tvö korna til greina, t.d. í nöfnurn eins og Baldvin (þar sem l og d koma til greina, Balli, Baddij, Guðmundur (ð og rn, Guddi, Gummi), Kjart- an (r og t, Kjarri, Kjatti), Magnús (g og n, Maggi, Manni), Valgeir (l og g, Valli, Vaggi), Þorvaldur (r og v, Þorri, *Þovvi>Þobbi) og svo framvegis. Hvort sem l er fyrra hljóð eða síðara af tveimur sem til greina kemur að tvöfalda í gælunafni virðist tilhneigingin frekar vera sú að það tvöfaldist ([1:]) en að hitt hljóðið geri það, þó stundum komi hvort tveggja til greina. Þegar -Ig- er í nafni verður það -ll- (Valgeir - Valli), ðl>ll (Guðlaugur - Gulli), nl>ll (Gunn- laugur - Grulli, Gunnlaug - Gulla), rl>ll (Karl - Kalli), lv>ll (Solveig - Sollaj. -If- getur hvort sem er breyst í -//- eða -ff- (Úlfar - Úlli, Álfbeið- ur -Alla, Májfý - Málfríður). Á sama hátt get- ur -1 d- hvort sem er orðið -//- eða -dd- (Baldvin - Balli og Halldóra - Haddy) og -hn- getur ýmist orðið -//- eða -mm- (Hjálmar - Hjalli, Hólmsteinn - Hommi, Hilmar - Himmx). Eins getur -Ib- hvort sem er orðið -//- eða -bb- (Kol- brún - Kolla, Salbjörg - Salla og Kobbi - Kol- beinri). Hér er líkt og kvenmanns- og karl- mannsgælunöfn séu ólík að þessu leyti, en ekki er víst að svo sé.Vel er hægt að ímynda sér að Kolli6 sé til sem gælunafn Kolbeins alveg eins og Kolla er gælunafn Kolbrúnar. Hvort sem það er tilviljun eða ekki finnst mér sarnt skrítið að hugsa til þess að Kolbrún gæti alveg eins haft gælunafnið Kobba og veit ekki til þess að slíkt sé til. Ef það er ekki til er samt Ijóst að það sem ræður því hvort hljóðið tvö- faldast er ckki aðeins hljóðfræðilegt heldur er það að einhverju leyti háð tilviljun, eða kannski smekk málhafa á því hvaða hljóð þeir kjósa að nota í hverju gælunafni. Þegar -fl- er í nafni eins og í karlmannsnafn- inu Hafiiði virðist / ekki tvöfaldast heldur kemur tvöfalt lokhljóð (b) í gælunafninu Habbi. í venjulegum framburði á klasanum -fl- verður lokhljóðun ([þl]), þ.e. í orðurn eins og afl, afli, efla, hefla, tefla o.s.frv., en í samsett- um orðum t.d. aflaga, aflát, aflausn hóflátur, líkt og um er að ræða í þessu tilfelli (Hafliði), verður yfirleitt ekki lokhljóðun, heldur [vl]- framburður og hef ég aldrei heyrt nafnið bor- ið fram öðruvísi svo hér er gert ráð fyrir sam- hljóðabreytingu (f>b). Þegar ð stendur á undan / (-ðf) verður ff í gælunafninu en ekki -dd- (Guðfinna - Guffaj hugsanlega vegna þess að Gudda er tengt við nafnið Guðríður (og því væri Guðfinna sem kölluð væri Gudda líklega talin heita Guðríð- ur). Eins og áður var sagt virðist -ðl- verða -//- (Guðlaugur - Gulli). Nöfn sem hafa -ðr- geta aftur á móti ýmist haft gælunöfn með -dd- (Diðrik - Diddi, Koðrán - Koddi, Guðríður - Guddaj eða -rr- (Guðríður - Gurra, Guðrún - Gurry). Þó er ekkert dærni um karlmannsgælu- nafn með ðr>rr (og Korri, Dirri virðast ómöguleg). í rnyndun gælunafns virðist -ðb- hvort sem er geta orðið -bb- eða -dd- en einungis er eitt dæmi urn hvort á listanum (Guðbrandur Gubbi, Gudda - Guðbjörg). Nöfn sem hafa -ðv- virðast aftur á móti aðeins mynda gælu-

x

Mímir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.