Mímir - 01.06.1998, Page 63
63
Lygilegar staðreyndir
Dókúmentarisminn grundvallast á hlut-
lausri miðlun staðreynda. Skráning og útlistun
atburða er blátt áfram og án túlkana þess sem
heldur á penna. Staðreyndirnar eru látnar tala
sínu máli. Ameríski dókúmentarisminn fjallar
að langmestu leyti um samtímaviðburði; t.d.
verkTrumans Capote, In Cold Blood, sem fjall-
ar um aðdraganda fjöldamorða í Bandaríkjun-
um og dómsmál sem sigldu í kjölfarið. Frásagn-
araðferðin er hlutlaus og vekur þannig lesand-
ann til eigin viðbragða. Þær staðreyndir sem
mynda heild hinnar amerísku dókúmentarísku
sögu eru ekki settar fram til að styðja einhverja
túlkun veruleikans sem er fyrirfram gefín held-
ur vegna „skáldsögulegs“ gildis þeirra í sjálfum
sér. Höfundurinn nálgast efnið gegnum stað-
reyndirnar en viðurkennir jafnframt að skiln-
ingur hans á því markast af fortíð hans og
reynslu auk væntinga um framtíðina sem hvort
tveggja verður ekki skilið óháð menningu og
tungumáli. Þess vegna heldur rannsakandinn
sér utan við efnið eftir fremsta megni á líkan
hátt og menn munu kannast við úr Kristnihald-
inu.
Ein aðferð sem Zavarzadeh rekur sérstak-
lega er þegar höfundarnir beita upptökutækni
og láta persónurnar tala sínu rnáli. Höfundur-
inn læst þá einungis vera skrásetjandi „beint af
bandinu". Slíkar sögur virðast sannari en ella
því að sögumaðurinn talar beint til lesanda án
þess að saga hans fari í gegnum síu opinbers
höfundar. Hámarki er slík sagnagerð talin ná í
verkum bandaríska mannfræðiprófessorsins
Oscars Lewis. Það er ástæða til að rekja verklag
þess manns nokkuð ítarlega ekki síst ef ætla
má að það hafi ráðið því að Kristnihald undir
Jökli varð ekki leikrit heldur skáldsaga.
í inngangi athugunar sinnar á lífi fátæklinga
í Mexíkóborg, The Children of Sánchez, segir
Lewis:
Segulbandið sem ævisögurnar í þessari bók eru teknar
upp á opnar fyrir nýja tegund þjóðfélagslegra raunsæisbók-
mennta. Með hjálp upptökutækisins getur óþjálfuð, ómennt-
uð og jafnvel ólæs manneskja talað um sjálfa sig og tengt
upplifanir sínar og reynslu blátt áfram og á óheftan og eðli-
legan hátt.22
The Children of Sánchez er byggð upp
þannig að í inngangi rekur Lewis aðdraganda
rannsóknar sinnar og hvernig hann kynntist
Sánchez-fjölskyldunni. Hann sér í þeim ákveð-
inn samnefnara fyrir fátæklinga Mexíkóborgar
auk þess sem einstakir meðlimir fjölskyldunn-
ar eru heillandi og athyglisverðir einstaklingar.
Meginaðferð þessarar athugunar er að láta við-
fangsefni hennar hafa orðið. „Þessi aðferð
margfaldra ævisagna miðar einnig að því að
draga úr áhrifum rannsakandans á viðfangsefn-
ið því sögurnar eru ekki ritaðar gegnum vit-
und Bandaríkjamanns af miðstétt heldur með
orðum fólksins sjálfs.“23 Ævisögurnar varpa
ljósi hver á aðra svo að höfundarþátturinn
virðist þurrkast enn frekar út vegna þess að
engin afstaða er tekin í textanum um hvað sé
rétt eða rangt heldur hafa persónurnar sjálfar
orðið. Þetta líkist mjög þeim fyrirmælum sem
biskup gefur Umba í upphafi Kristnihaldsins.
Umbi: Einhvernveginn verð ég þó að sannprófa það sem
þeir segja.
Biskup: Ekki sannprófa neitt! Ef menn ljúga, þá það. Ef
þeir eru komnir upp með einhverja kreddu, þá þess heldur!
Gleymið ekki að fáir eru Iíklegir til að segja nema soldið satt;
enginn mjög satt, því síður hreina satt.Töluð orð eru stað-
reynd útaf fyrir sig sönn eða login. Þegar rnenn tala þá tjá
þeir sjáifa sig hvortheldur þeir ljúga eða segja satt. Umbi: Og
ef ég stend þá að lygi?
Biskup:Tala aldrei illa um nokkurn mann í skýrslu. Munið að
því sem logið er að yður, jafnvel vísvitandi, það er oft merki-
legri staðreynd en sönn saga sem menn segja í einlægni. C’)
Lewis gerir sér einmitt nokkra grein fyrir
því að rannsakandinn sjálfur hefur áhrif á við-
fangsefni sitt og að skynjun hans á umhverfinu
markast af persónu hans sjálfs þótt hann telji
að það megi draga svo mikið úr slíkum tengsl-
um að þau hafi ekki bein áhrif á rannsóknirn-
ar eða niðurstöður þeirra. Þótt upprunalegur
tilgangur rannsóknarinnar sé vísindalegs eðlis
urðu tengsl rannsakandans og viðfangsefnisins