Mímir - 01.06.1998, Side 80
80
Aðalfundur Mímis, 17. apríl 1998 í
Stúdentakj allaranum
Á fundinum sátu sextán félagsmenn auk
nokkurra áheyrenda.
1. Hjörtur Einarsson, ritari, las skýrslu stjórn-
ar. Skýrla stjórnar er birt í 46. árgangi Mímis
1998.
2. María Sæmundsdóttir, gjaldkeri, lagði fram
reikninga Mímis.
3. Boðið var til umræðu um skýrslu og reikn-
inga. Upp komu umræður um Árshátíð og
hvernig að henni var staðið.Voru rnargir á
því að vel hafi tekist en þó heyrðust raddir
um að betur færi að íslenskunemar héldu
Árshátíð einir og sér. Annars voru menn
almennt sáttir við starf stjórnar veturinn
1997-1998.
4. Lagabreytingar. Hluti af stjórn Mímis kom
með eftirfarandi breytingartillögur:
1.4. grein breytt svo: Stjórn félagsins skipa
fimm menn. Kjósa skal fjóra félagsmenn á aðal-
fundi í embætti formanns, gjaldkera, ritara og
meðstjórnanda. Þá skal einn fulltrúi fyrsta árs
nema kosinn á sérstökum haustfundi. Að auki
tilnefnir ritnefnd einn áheyrnarfulltrúa úr
sínum hópi í stjórn. (4.1-3 óbreytt)
Kosið var: Tólf kusu með en einn á móti,
þrír sátu hjá eða kusu ekki.
Tillagan því samþykkt.
2.5. grein breytt svo: Allar kosningar skulu
vera leynilegar þó aðeins eitt framboð komi
fram. Enginn félagsmanna er kjörgengur til
stjórnar meira en tvö ár í röð. Fyrsta árs nemar
hafa kosningarétt og kjörgengi á aðalfundi, þá
er þeir teljast félagar samkvæmt 2. grein.
Lagt til að í stað „Allar kosningar skulu vera
leynilega “ korni „Alltaf skal kosið”.
Kosið var:Tíu kusu með en sex sátu hjá.
Tillagan var samþykkt svo hljóðandi:
„Alltaf skal kosið þó aðeins eitt framboð
komi fram. Enginn félagsmanna er kjörgengur
til stjórnar rneira en tvö ár í röð. Fyrsta árs
nernar hafa kosningarétt og kjörgengi á aðal-
fundi, þá er þeir teljast félagar samkvæmt 2.
grein.”
3.6. grein breytt svo: FELLD NIÐUR.
7. grein verði 6. grein o.s.frv.
Kosið var:Tíu kusu með en fimm kusu á
móti, einn sat hjá eða kaus ekki .
Tillaga samþykkt.
4.11. grein breytt svo: Lögunt félagsins verð-
ur aðeins breytt á aðalfundi með samþykkt 2/3
hluta fundarmanna. Aðalftindur er löglegur ef
löglega er til hans boðað og ef að minnsta
kosti helmingur félagmanna mætir.Tillaga kom
um að tillögu yrði breytt þannig að í stað
„helmingur félagsmanna” kæmi „þriðjungur
félagsmanna” Kosið var um seinni tillögu.
Fjórir kusu með en sjö á rnóti, fimm sátu hjá
eða kusu ekki. Tillaga felld. Kosið var um
óbreytta tillögu. Sex kusu með en þrír á móti,
sjö sátu hjá eða kusu ekki. Tillagan var því
samþykkt.
Kosningar. Fyrst var kosið í embætti for-
manns Mímis, félags stúdenta í íslenskum
fræðum. Stungið var upp á Katrínu Jakobs-
dóttur. Hún baðst undan. Stungið var upp á
Hjördísi Hilmarsdóttur. Hún skoraðist undan.
Stungið var upp á Sverri Friðrikssyni þá ver-
andi fyrsta árs nema fulltrúa. Hann játti því.
Kosið var og Sverrir einróma kjörinn.
Næst var kosið um ritara Mírnis. Hjördís
Hilmarsdóttir gaf hins vegar kost á sér í það
embætti. Hjördís var einróma kjörin.