Nýir pennar - 15.04.1947, Blaðsíða 3
! NÝIR______________________________
PENNAR
|T
5 > j[ iERRA minn trúr, eitt enn“, sagði
maður nokkur, er hann heyrði um þetta
nýja rit. Vér brostum með bjartsýni þess,
sem gefur út tímarit á íslandi í fyrst® sinn,
og létum sem oss væri algerlega ókunnugt
um hinn mikla barnadauða íslenzkra tíma-
rita. Þegar maðurinn heyrði, hvers konar
rit þetta ætti að vera, andvarpaði hann og
sagði: „Þér virðist ætla að dansa línudans
einhvers staðar mitt á milli Helgafells og
Heimilisritsins. Ég óska yður góðs gengis“.
Lesandinn getur dæmt um réttmæti þessa
dóms. Sjálíir ætlum vér ekki að lofa neinu
til þess að eiga ekki á hættu að svíkja neitt.
Vér biðjum lesandann þess eins, að finnist
honum ritið eiga hér tilverurétt, þá taki
hann næsta hefti heim með sér, er hann
rekst á það með vorinu.
Látið nafnið ekki villa yður. Þetta er að
vísu rit helgað ungum mönnum og þeim,
sem vilja vera ungir, en vér tökum nafnið
ekki of hátíðlega né bindum oss við að
'standa algerlega undir því. Að svo mæltu
talar ritið sínu eigin máli.. ,
i