Nýir pennar - 15.04.1947, Blaðsíða 57

Nýir pennar - 15.04.1947, Blaðsíða 57
um á hverju sumri bezta vín í heimi úr eini og hrútaberjum skóg- arins. Hún hálffyllti hatt hans sjöstjörnum og villirósum og sagð- ist ætla að láta slík blóm standa blómguð árið í kring í svefnhúsi þeirra, er þau væru gift, — það væri alltaf sumar einhvers staðar í skútum eða skógarbotni á vetrum, þar sem hún gæti lesið þau. En hann sá ekki blómin, sá ekkert nema unnustuna, sem honum fannst blíðari en draumur. Þau hlupu stundum heilar júnínætur um skóginn, — urðu frámuna við að anda að sér anganinni af birki og víði og reyni og úr reyrgresinu, hlupu upp að Þrífossa- gili, þar sem feikilega hár foss féll með kristallsóm, klifu hæstu hamra til þess eins að sjá sem bezt skriðjöklafossana og Lóma- gnúp, er var sem blátt, höfugt regnský, hversu heiðríkt sem *'ar. En upprifjun hans lauk sem fyrr á minningum um brostnar vonir og svik og á tryllingshlátri. En hve hún hafði verið fölsk. Höfðu orð hennar alltaf verið önglar, sem varpað er á miðum eftir bráð? Enn einu sinni hvíslaði maðurinn nafni unnustunnar eins og bæn. Hversu sæll hafði hann alltaf verið í návist hennar, — naum- ast vitað, hvort hann var á himni eða jörðu, naumast vitað, hvort sumarið var skemmtilegra en veturinn. Það var líka eins og gleði hennar væri aldrei fullkomin, nema hann samgleddist henni. Ef hún hafði gert fallega skó, ofið góða einskeftu, saumað snotra brjósthlíf eða fundið upp nýtt útprjón, þá var hún ckki í rónni, fyrr en hann hafði hrósað því. Hrós annarra heimilismanna virt- ist henni eigi mikls virði. Eða hve hún sóttist eftir að vera með honum einum. Þá er hann var að skera torf á vorin, en hún að rífa mosa eða tína í eldinn, lagði hún langan krók á leið sína bara til að geta hitt hann. Blaut pælan var þó engan veginn fýsi- legur staður til ástafunda. Hann hélt áfram að teyga minningarnar um hana eins og dauð- þyrstur maður vatn úr hófspori. Eitt sinn að vetrarlagi fóru þau á dansleik í aðra sveit. A heim-. Ieiðinni gerði fjúk svo mikið, að þau villtust. í hálft dægur var þreifandi snjókoma, færð þyngdist, og alltaf voru þau að villast. 55
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Nýir pennar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýir pennar
https://timarit.is/publication/1954

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.