Nýir pennar - 15.04.1947, Side 12

Nýir pennar - 15.04.1947, Side 12
veitingastofuna. Það væri skræl- ingjaháttur. Hálf-vandræðaleg- ur spurði ég umsjónarmanninn hvort hann gæti ekki lánað mér skóbursta? En hvað skyldi hann annars halda? Allir voru vitan- lega i skóhlífum í svona veðri. Ég horfði í spegilinn og setti upp eins merkilegan svip og mér var unnt. Nei, engum, sem horfði á mann með þvílíkum manndrápssvip, mundi detta sú fjarstæða í hug, að þarna væri ’inaður sem hefði ekki ráð á því að kaupa sér skóhlífar. — Gjörið svo vel, herra list- málari, setjist hér á stólinn, jeg skal bursta skóna yðar. Það snart mig einhver nota- leg tilfinning. — Herra listmál- ari! — Hann vissi, að ég var listmálari! — Hann bar auðsjá- anlega mikla virðingu fyrir mér. Þetta var óvenjulega kurteis maður. Og áður en ég vissi af, var umsjónarmaðurinn fallinn á kné, eins og maður er gerir bæn sína, og tekinn að bursta skóna mína af þvílíkum ákafa, að ég var sem gripinn straumi og skjálfta. Að lítilli stundu liðinni voru skórnir líka svo fagurgljá- andi, að ég hefði vel getað ætl- að mig ofurlítið ruglaðan í koll- inum, haldið að ég hefði keypt mér nýja skó þá um daginn. Ég brosti með sjálfum mér. En ég vaknaði fljótt af þessum hug- leiðingum, þegar mér varð Iitið á umsjónarmanninn. Hann stóð fyrir framan mig líkt og tákn- ræn standmynd af hinni vinn- andi stétt, er beið eftir útborg- un á launagreiðsludegi. Vitaskuld verðskuldaði hann greiðslú fyrir unnið verk. Hann skyldi ekki heldur ætla mig ein- hvern svíðing. Ég rétti þegar mannalega úr mér, og með mikl- um fínheitum stakk ég annarri hendinni í hægri vestisvasann, þar sem fimm krónurnar áttn að vera — aleigan.------Hvað? — Guð komi til! — Týndar? — Blóðið steig mér til höfuðs. Með minnkandi mannalátum, en þeim mun meiri taugaóstyrk fálmaði ég ofan í hinn vestis- vasann. Jú, þar lumaði hann á sér, allur samanbrotinn, bölv- aður seðillinn. Mér létti stórum. Með heimsborgaralegu kæru- leysi þess manns, sem telur ein- ar skítugar fimir. krónur ekki með peningum, rétti ég umsjón- armanninum seðilinn: — Gjörið svo vel! 10

x

Nýir pennar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýir pennar
https://timarit.is/publication/1954

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.