Nýir pennar - 15.04.1947, Síða 13

Nýir pennar - 15.04.1947, Síða 13
Og enn þurfti ég að laga á mér hálsbindið og flibbann — auð- vitað aðeins til að gefa umsjón- armanninum góðan tíma til að skipta seðliuum og til að láta sem minnst á því bera, að nú var það ég sem beið. 1 speglinum fylgdi ég með nákvæmri eftirtekt hverri hand- hreyfingu umsjónarmannsins. Ilann sléttaði vandlega úr seðl- unum, hver hrukka og hvert horn sem var uppbrett voru vendilega sléttuð. Síðan hvarf seðillinn niður í veski manns- ins, og þar næst hvarf veskið niður í vasann. Og umsjónar- maðurinn tók að bursta fis af buxunum sínum til að gera eitt- hvað, Eg ætlaði ekki að trúa mín- um eigin augum/ Mér fannst sem kalt vatn rynni mér milli skinns og hörunds. Nei, maður- inn gat hreint og beint ekki ver- ið svo ósvífinn, að ætla að taka fimm krónur fyrir að bursta skóna. Ég gerði honurn eflaust rangt til. Hann mundi áreiðan- lega rakna við sér von bráðar, gefa mér til baka og biðja mig afsökunnar. Ekkert var eðli- legra. Nokkrar mínútur liðu.------ Ég fór að finna til einkenni- legs höfuðsvima. Mér var að byrja að líða eitthvað illa. Nú varð umsjónarmanninum litið á mig — eflaust hefur hon- um fundizt einkennilegt, hve lengi ég horfði á þetta andlit í speglinum, þetta andlit, sem tómleiki sálarinnar skein úr og sljóleiki þess, sem engu hefur framar að glata í lífinu. En umsjónarmaðurinn skildi ekki neitt — vissi ekki neitt. Hann horfði algjörlega blygðun- arlausum augum á mig, likt og sálarlaus maður. En það s'kyldi hann vita, sá góði maður, að það væri fyrir neðan virðingu mina að ympra á endurgreiðslu af einum skitnum fimm krónum, svo smásálarlegur og lítilfjörleg- ur gat ég aldrei orðið. Ég reyndi að brosa um leið og ég staulaðist út. Umsjónar- maðurinn hneigði sig virðulega og sagði: — Þakka yður fyrir, herra listmálari! Ég hugsaði: Ef til vill var um- sjónarmaðurinn samt ekki al- gjörlega sálarlaus. Hann hélt auðsjáanlega, að ég væri maður, sem munaði ekki minnstu vit- und um að gefa heilar fimm 11

x

Nýir pennar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýir pennar
https://timarit.is/publication/1954

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.