Nýir pennar - 15.04.1947, Side 16

Nýir pennar - 15.04.1947, Side 16
sinn náð að skynja hana. Til þess skal hlæja grát úr geði, til þess verða fræin að vaxa, til þess verður vaxtarþrá andans að glæðlast. Það er einkum þessi stefnuskrá, ástríðan til að fram- fylgja henni og getan til þess, sem heitir hjá Heiðreki Arfur öreigans. Heiti þetta valdi höfundurinn fyrstu ljóðabók sinni, og kemur hún út hjá Helgafelli 1947. Hann er óþekktur maður, svo að bókarheitið fræðir lesendur nokkuð um uppruna hans. Kvæði Heiðreks eru sprottin úr lífskjörum hans og þeirra stétta, sem hann hefur tilheyi’t. Úr þeirn má því lesa, beint og ó- beint, að hann sé upprunninn í sveit með sterkar rætur þar, hafi kennt heilsubrests, gerzt verka- maður í vegavinnu, hernáms- vinnu og sennilega fleiri störf- um og fundizt raunar fátt um að ciga þar ævistarf, sakir skáld- þrár sinnar, en í hugsunarhætti fylgir hann ávallt fast hinum vinnandi stéttum. Heiðrekur er ekki svo bráð- þroska, að hann sé af unga aldri, þótt kominn sé yfir þrítugt. Bráður skáldþroski freistar stundum unglinga til að ljúka af að gera beztu kvæði sín, áður en þeir hafa orðið að manni og fengið lífsreynslu. Áður en Heið- rekur kynnti skáldskap sinn í bók, kynntist hann mörgu sjálf- ur, dugði til starfs og baráttu, varð að manni. Avinningur hans af þessu er ekki krónur, heldur skapgerð, en hún var reyndar frá upphafi lundstór, lundhlý og mótuð sterklega. Oft er illt að dæma um byrj- endakvæði. Þau skreppa úr höndum manns hálfskilin og efasamast er, hvort höfundur- inn hafi skilið þau vel sjálfur. Þrátt fyrir þetta og fleiri galla getur hugsazt, að höfundurinn reynist síðar skáld. Meðal alls grúans af íslenzkuin „skóla- skáldum“ í hundrað ár má finna nokkur dæmi þess. Um frumsmíð Heiðreks gegn- ir öðru máli. Sérhvert kvæði sýnir, að vel er honum Ijóst — og oftast lesendum, — hvað hann vill segja og að jafnaði með hvaða skáldstíl og blæ. Vald hans á formi, efni og máli sprettur bæði af náðargáfu og ströngu námi, og þar á hann góðan spöl ófarinn enn til full- þroskans. Val hans á yrkisefn- um og meðferð þeirra er mjög 14

x

Nýir pennar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýir pennar
https://timarit.is/publication/1954

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.