Nýir pennar - 15.04.1947, Side 22

Nýir pennar - 15.04.1947, Side 22
sjást vitringar, sem eru að gera ungling afturreka, þeir setja hann og list hans utan garðs í þjóðfélaginu. Hann snýr út: Fátt er um kveðjur. Hurð á hæla skellur. Heiftin og bræðin renna gönu- skeið. Eldstrauma flóð úrundirdjúpum vellur, ólgar við barm og storknar þar um leið. Skyggir um sviðið. Þungt í lofti þýtur. Þreyttur hann gengur dómsins sölum frá. Stormur til grunna höll að baki brýtur. . Bjarminn er horfinn. Myrkrið skollið á. Höllin, sem þarna brotnar, er höll falsmenningarinnar, ímynd þess, sem unglingurinn smáði hatar frá þessari kvöldstund, er hann steig þar fséti inn. Heiðrekur er vel ættaðui). Faðir hans var Guðmundur skáld á Sandi, og skáldhneigð þeirra er ákaflega kynrík, þótt mér sé ókunnugt, hvort aðrir synir Guðmundar muni njóta sín á því sviði. Til móður sinn- ar sjötugrar hefur Heiðrekur gert látlaust og innilegt kvæði, sem er ein af perlum bókarinn- ar, og hver, sem þekkir til, vill taka undir lofstír þess af heilum hug. Kveðja heitir ljóð, sem hann gerði eftir föður sinn, og þykir mér sumt í því athyglis- vert sálfræðilega um þá feðga báða auk hinnar öruggu listar, sem í Kveðju er. Það er eigi lítið afrek fyrir son skálds að vaxa upp með föðurnum, verða talsvert eðlislíkur honum, gerast einnig skáld, en ná því sjálf- stæði í skoðunum, tungutaki og allri braglist, að bergmál frá hinum eldra verður hvergi að meini. Þetta hefur Heiðreki tek- izt með ágætum, a. m. k. siðari árin. Einn árangurinn af því er sá, að í Kveðju reynist hann fær um að móta athyglisverða skýring á ritstörfum föður síns. Þegar Guðmundur á Sandi orti Ekkjuna við ána fyrir hálfri öld, eignuðust íslendingar svo einkennilegt skáld og sérstökum viðfangsefnum vaxið, að það var óbætanlegt tjón, að hann hlaut enga viðurkcnning, sem dugði. fyrr en hann var orðinn slitinn maður og nokkuð annar en á fyrstu og frjóustu skáldárunum. 20

x

Nýir pennar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýir pennar
https://timarit.is/publication/1954

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.