Nýir pennar - 15.04.1947, Side 26

Nýir pennar - 15.04.1947, Side 26
Og vonar skartaði Ijós í leyni um langan bjartasla œvidag. Af öllu hjarta þú únnir sveini, og ei var kvartað um þröngan hag. En löngum hefur sd lítil völd, sem lífið krefur um þyngstu gjöld. Á hendur treystuð, og hattir stundum í huga reistuð, en þar við stóð. Hvert starf þið leystuð með styrkum mundum, en stritið kreisti undan nöglum blóð. Þœr hallir stríðasti stormur braut. Og stöðugt síðan um rústir þaut. I lága bœnum varst bundinn fangi á bala grœnum, hvem dag og nátt, er lœkjarsprœnan á viðum vangi í vorsins blœnúrn sér leilcur dátt. Með ástúð hlynntir að ungri sál, með aliið kyntir þitt fórnarbál. Þér virtist þrjóta ött vorsins mildi og vinarliótin þíns glœsta manns. A eigin fótum hann vera vildi, og vetur mótaði skapgerð hans. Og ástin grandaði sjálfri sér, en svalar andaði á móti þér. — Svo liðu árin við fjóru og flœði. Þú faldir tárin und brúnaskör. Og mörgum sárum þið sœrðuzt bœði og síðan báruð hin djúpu ör. En litlu 'börnin þér urðu allt og eina vörnin, sem lífið galt.

x

Nýir pennar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýir pennar
https://timarit.is/publication/1954

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.