Nýir pennar - 15.04.1947, Side 30

Nýir pennar - 15.04.1947, Side 30
ar umræður um fjáröflunarleið- ir, það var sparað og safnað, það var slegið og það var skrif- að eftir frönkum til mæðra og frænkna, svo að Saint-Clyr hafði aldrei séð annað eins. A hinum fyrirfram ákveðna degi hafði svo hver einasti maður lagt til sína (eða einhvers annars) fimm franka. \Það átti að fara að draga í happdrættinu, þegar aðstoðar- liðsforingi einn komst á snoðir um þetta sér til mikillar undr- unar, og kærði það til yfirfor- ingja skólans. Þegar gamli her- foringinn hafði heyrt söguna á enda, varð hann svo hissa, að honum varð orðfall. „Pilturinn, sem vinnur þetta, verður öfundaður af allri sinni kynslóð“, sagði hann um síðir, „en sá, sem fann upp á þessu, á vafalaust eftir að verða mar- skálkur alls Frakklands“. Hann sá fyrir sér skjálfandi nýliða standa við bakdymar á leikhús- inu, þar sem ungfrú Cosette vann, með 5000 franka í vasan- um, og gamli maðurinn skelli- hló. Þeir hafa gleymt að reikna með ferðinni til Parísar, með ökumanni og vagni, blómum og kampavíni, benti hann á. Svo bætti hann við, að hann skyldi með ánægju leggja til úr eigin vasa það, sem á vantaði. „Það verða aukaútgjöld við þetta“, sagði hann. „Sendið þið þorpar- ann, sem vinnur, hingaci til mín, áður en hann legur af stað“. Það var piltur frá Vendée, sem leit við hjá herforingjanum næsta dag, nýklipptur og snyrti- legur í rauðu brókunum sínum og bláa herfrakkanum með hvíta, tandurhreina hanzka. skínandi korða við hlið sér, — og hjartað uppi í hálsi. Herfor- inginn sagði ekki orð, en rétti honuin pyngju með nokkrum gullpeningum, kyssti hann á báða vanga og gekk síðan að glugganum til þess að sjá hann fara. Það ikti í honum, þegar hann sá piltinn hverfa niður trjágöngin. * * ■* SÓLARGEISLARNIR skinu gegnum blúndugardínurnar hjá Cosette og köstuðu daufum skuggamyndum á veginn morg- uninn eftir, þegar ungfrúin vaknaði. Ilún settist upp og fór að hugsa um daginn, sem var framundan. Litla liðsforingja- efnið svaf ennþá værum, draum- lausum svefni, og hún varð 28

x

Nýir pennar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýir pennar
https://timarit.is/publication/1954

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.