Nýir pennar - 15.04.1947, Page 31

Nýir pennar - 15.04.1947, Page 31
næstum því hrærð er hún hugs- aði til þess, hvað hann var ósköp ungur. Ilún fór að hugsa um þá daga, er hún var sjálf á þeim aldri og var að leggja út á lífs- brautina. Skyndilega datt henni dálítið einkennilegt í hug. Hún ýtti við piltinum. „Heyrðu, mon ami, hvemig í ósköpunum getur liðsforingja- efni í Saint-Clyr komizt yfir 5000 franka?“ IJngi maðurinn varð alveg ruglaður, er hann heyrði þessa óvæntu spurningu og loks stam- aði hann út úr sér sögunni um söfnuðina. Honum fannst það ekki geta gert neitt til, úr því sem komið var, og hún hlustaði með slíkum ákafa, stundi af undrun, hló og kímdi, svo að hann varð harla ánægður með söguna. Þegar hann kom að her- foringjanum, stökk hún upp og gekk fram og aftur með tárin í fjólubláum augunum, svo að greiðslusloppurinn hennar þyrl- aðist eins og ský í kringum hana. „Saint-Clyr hefur veitt mér fegurstu upphefð, sem ég hef nokkru sinni orðið fyrir“, sagði hún, „og í dag er' ég stoltasta kona Frakklands. En ég verð að sýna þakklæti mitt. Parðu aftur til Saint-Clyr og segðu öllum liðsforingjaefnunum, að Cosette sé kona, sem kann að hegða sér. 29

x

Nýir pennar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýir pennar
https://timarit.is/publication/1954

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.