Nýir pennar - 15.04.1947, Side 53

Nýir pennar - 15.04.1947, Side 53
dag frá degi meira vald yfir honum. Ótal truflandi spumingar gerðu vart við sig í sál hans. Honum fannst allir menn vera svo breyttir — skildi ekki, að það var hann sjálfur, sem hafði breytzt. Hann varð brátt verklaus, langaði ekki framar að smíða við afl lífsins, gekk jafnan með tvo rakhnífa í vasanum. Hann sagði eng- um frá hugarkvöl sinni, ekki einu sinni steininum, og þess vegna varð hún honum þungbæx-ax-i. Oft og einatt rifjaði hann upp ástar- orð unnustunnar ósjálfrátt. Hann þóttist heyi'a andai'drátt henn- ar, þóttist heyra hjarta hennar slá við barm sinn, þóttist heyra hana hvísla ástaroi’ðum. En slikt var aldrei nema andartaks fró. Hann naut einungis andartaks og andartaks, dýrlegs, hverfuls and- artaks. Og verúleikinn gerðist honum ennþá torræðari og bitrari, hvert sinn, er hann raknaði úr leiðslumókinu. Skolgráir jökullæknir og tærar síkur streymdu fram sandinn hér og þar. Strjálir' jöklabrestir, vatnaniður og þytur þokulúðx-a utan af Atlantshafi var því nær hið eina, er rauf auðnarkyrrðina. Maðurinn sló í hestana og reið hratt lækina, sem voru í vexti. Hestarnir hnutu eilítið öðru hverju, vatnið skvettist í stórum bog- um upp af mönnum og hestum. Þá er maðurinn sökkti sér ofan í minninganiar um unnustuna, fóru draugarnir aftur að sækja að honum og vildu komast upp á milli þeirra. Bezt var að hraða sér. allt hvað af tók, á leiðarenda. Þar, í grængresinu, myndu vofurnar ekki taka dansspor og gabba hann. Þar yrði hægax-a að finna lausn á ráðgátunni. A'llt líf virtist hrætt að draga andann á sandinum, nema grimmir skúmar á daginn og hásar uglur á nóttunni. Það var ekki jökulhlaup á hælum hans, það var dauðinn. Maðurinn reið í ofboði. II Tveim stundum síðar bar vei’manninn að stóru, straumhörðu fljóti. Það varð fyrst frjálst úr fangelsi gljúfranna einmitt á þess- um slóðum og bylti sér æðislega fram flatneskjuna. A bakkanum andspænis reis óljóst úr þokunni bær. Það var Gil, þar sem hann átti heima. Gi'ænn torfbærinn með bikuðum þiljum var í svo 51

x

Nýir pennar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýir pennar
https://timarit.is/publication/1954

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.