Bergmál - 01.05.1955, Blaðsíða 20
M A í
B E R G M Á L--------------------
barni. Ég ætlaði að sækja hana
hvaða afleiðingar sem það kynni
að hafa á líf mitt og hjónaband
mitt.
Þetta kvöld, eftir að telpurn-
ar voru háttaðar, sagði ég Harry
allt af létta. Hann sat grafkyrr
og hlustaði þar til ég hafði lokið
máli mínu. „Ég verð að fara og
sækja Thelmu og hafa hana hjá
mér hér eftir, Harry,“ sagði ég
að lokum. „Hún er dóttir mín
og ég elska hana. En þú — þér
er frjálst að skilja við mig. Eng-
inn myndi álasa þér fyrir það.
Eftir að ég hefi logið svona í
Þig-“
Skyndilega varð mér að fullu
ljóst hvað það þýddi fyrir mig,
ef Harry skildi við mig og ég
varð lostin slíkri örvæntingu,
að ég vissi það að ég myndi þá
og þegar fara að kjökra og biðja
hann að yfirgefa mig ekki.
„Cynthia, hlustaðu á mig,“
sagði Harry rólega. „Ég hefi
lengi undanfarið vitað, að eitt-
hvað amaði að,“ byrjaði hann.
„Og smátt og smátt varð mér
sannleikurinn ljós. Ég hef bar-
izt við að halda í þá von að
grunur minn hefði ekki við rök
að styðjast, en — en ég lagði
saman tvo og tvo. Og þegar þú
komst frá jarðarför frænku
þinnar, þá fann ég að skórinn
kreppti einhvers staðar meira
en lítið, þú varst svo óstyrk og
hrjáð. Auk þess talaðir þú svo
mikið um Thelmu.“
„Ég taldi sjálfum mér trú um,
að það væri fásinna að gruna
þig um að hafa leynt mig sann-
leikanum öll þessi ár. Ég blygð-
aðist mín meira að segja fyrir
að tortryggja þig. Þrátt fyrir
það gat ég ekki að mér gert.“
„En hvers vegna — hvers
vegna sagðir þú ekki eitthvað?“
„Ég var að bíða eftir því að
þú gætir af sjálfsdáðum losað
þig við þá martröð falskra verð-
mæta, sem á þig var lögð í upp-
vextinum. Ég gat ekki skilið að
þér væri mögulegt að halda því
áfram að afneita þínu eigin
barni og firra það allri ást og
umhyggju aðeins vegna þess að
þú værir hrædd við hvað fólk
myndi segja. Ég fann það að
aldrei mundi gróa um heilt á
milli okkar hér eftir, nema því
aðeins að þú segðir mér allan
sánnleikan ótilkvödd.“
Ég var nokkra stund að átta
mig til fulls á orðum hans, svo
leit ég á hann svolítið vonbetri.
„Harry — þú — þú átt við ... . “
„Ég á við það að við gengum
að eiga hvort annað og hvorugt
okkar er fullkomið," sagði hann
18