Bergmál - 01.05.1955, Side 26
Maí
B E R G M Á L-------------------
var og veikbyggður; hann vakti
hjá mönnum verndarhvötina.
Mönnum fannst, að hann gæti
ekki gert flugu mein.
Kvöld nokkurt sat ég niðri í
forstofunni á Grand Hótel.
Þetta var fyrir landskjálftana
mikiu og þá voru þarna þægi-
legir leðurstólar. Út um glugg-
ann var gott útsýni niður á höfn-
ina og yfir alla mannþröngina
þar. Á henni lágu stór farþega-
skip, sem voru á leið til Van-
couver og San Francisco eða
Evrópu með viðkomu í Shang-
hai, Hong-Kong og Singapore.
Þarna gat að líta flökkumenn
af mörgum þjóðum, hrakta og
niðurbarða, flatbotnunga með
háu stefni og litríkum stórsegl-
um og aragrúa af alls konar
fljótabátum. Þetta var litrík og
lifandi útsýn og samt, ég veit
ekki hvers vegna, veitti hún
undarlega hvíld fyrir áhorfand-
ann. Hér voru ævintýri og ekki
virtist þurfa annars með en
rétta út hendina til að öðlast
þau.
Burton varð gengið þarna um
forstofuna og hann kom auga á
mig. Hann settist í stól við hlið
mína?
„Viljið þér eitt glas?“
Hann klappaði saman hönd-
unum til að ná til þjónsins og
bað um tvö glös af gini. Þegar
þjónninn kom með ginið gekk
maður fram hjá úti á gangstétt-
inni og kom auga á mig og kink-
aði kolli.
„Þekkið þér Turner?“ sagði
Burton, þegar hann sá að ég
kinkaði kolli á jmóti.
„Ég hef séð hann í klúbbn-
um. Mér er sagt að hann sé miðl-
ari.“
„Já, það er víst rétt. Þeir eru
margir hér um slóðir.“
„Hann spilar bridge vel.“
„Þeir gera það yfirleitt þessir.
í fyrra var hér einn, meira að
segja nafni minn, sem spilaði
bridge betur en nokkur annar
sem ég hef þekkt. Ég veit ekki
hvort þér hafið nokkurn tíma
séð hann í London. Hann var
kallaður Lenny Burton. Ég held
hann hafi verið félagi í nokkr-
um mjög góðum klúbbum.11
„Nei, ekki minnist ég að hafa
heyrt hans getið..“
„Hann var mjög athyglis-
verður spilamaður. Hann virtist
hafa eins konar sjötta skiln-
ingarvit í spilum. Það var næst-
um því hrollvekjandi'. Ég spilaði
talsvert við hann. Hann dvald-
ist hér í Kobe um skeið.“
Burton saup ginið sitt.
„Þetta var annars mjög ein-
kennilegt allt saman,“ sagði
24