Bergmál - 01.05.1955, Page 32
M A t
B E R G M Á L
unni. Það er ekki fyrr en bíllinn
er kominn af stað aftur, að Áki
heyrir að það er ekki rétti bíll-
inn. Þessi bíll hafði numið
staðar við hús nágrannans.
Rétti bíllinn hlaut því að vera á
leiðinni enn þá, ef til vill hafði
hann lent í umferðarstöðvun við
næstu þvergötu, eða kannske
heíur hann numið staðar til að
aðstoða hjólreiðarmann, sem
fallið hefur á götuna. Það er svo
margt, sem getur orðið til að
tefja bíl.
Að lokum kemur samt bíll,
sem virðist geta verið sá rétti.
Alllangt frá húsinu, sem Áki á
heima í, hægir hann á ferðinni.
Hann ekur fram hjá hliði ná-
grannans og nemur að lokum
staðar beint framan við rétta
hliðið. Bílhurð opnast og lok-
ast, einhver talar í hálfum hljóð-
um og leitar eftir peningum í
vösum sínum. Faðir hans talaði
að vísu aldrei í hálfum hljóðum,
en það var samt aldrei hægt að
vita. Því skyldi hann ekki geta
byrjað á því fyrirvaralaust, að
fara að tala í hálfum hljóðum?
Bíllin fer af stað aftur og
ekur fyrir hornið, því næst
verður allt hljótt. Áki stendur á
öndinni og hlustar hvort ekki
heyrist fótatak, en hliðgrindin
smellur ekki aftur, eins og hún
gerir jafnan er einhver kemur
inn. Ekki heyrist heldur litli,
daufi smellurinn, sem alltaf
heyrist þegar einhver kveikir
stigaljósin. Ekki vottur af fóta-
taki í stigunum.
Hvers vegna var ég líka að
fara svona fljótt frá honum, —
hugsar Áki. Ég hefði vel getað
haldið áfram með bílnum alveg
heim að garðshliðinu. Nú stend-
ur hann náttúrlega þarna niðri
og finnur ekki útidyralykilinn,
svo að hann kemst ekki inn.
Kannske verður hann reiður og
fer sína leið, og kemur ekki
aftur fyrr en dyrnar eru opn-
aðar, snemma í fyrramálið. Og
ekki getur hann kallað um há-
nótt, annars myndi hann kalla
til mín eða mömmu og biðja
okkur að kasta lykli niður til
hans.
Áki klifrast fram úr þessum
sí-brakandi dívangarmi eins
hljóðlega og unt er, þreifar sig
áfram í myrkrinu, yfir að eld-
húsborðinu og stendur þar
skjálfandi á gamalli, slitinni
korkmottu, en móðirin snöktir
hátt og reglubundið, eins og sof-
andi maður með andþrengsli,
hún hefir þá ekki heyrt neitt.
Hann heldur áfram út að
glugganum og þegar hann kem-
30