Bergmál - 01.12.1955, Side 4
SMÆLKI
í fyrsta skipti sem Tommi litli fékk
að fara á sinfóníutónleika, söng fræg
óperusöngkona með hljómsveitinni og
undraðist Tommi mjög framkomu
hljómsveitarstjórans við söngkon-
una.
„Hvers vegna er hann að lemja
hana með þessum staf?“ spurði Tommi.
„Uss, — hafðu ekki hátt,“ sagði
mamma hans. „Hann er ekki að slá
hana með stafnum."
„Nú,“ sagði Tommi, „af hverju er
hún þá að öskra?“
★
Hér um daginn las ég grein um hin
skaðlegu áhrif tóbaks-reykinga, svo
að nú er ég steinhættur — að lesa.
★ _
Nýgifta konan: „Ég þarf að gera
eina játningu, elsku vinur mi'nn. —
Einn af ættingjum mínum var
hengdur."
Nýgifti maðnrinn: „Hafðu engar
áhyggjur af því, elskan mín. — Ég á
marga ættingja, sem ættu skilið að
vera hengdir."
★
„Ég vildi óska, að öllu áfengi yrði
hellt í sjóinn,“ sagði ræðumaður einn
á fundi þar sem rætt var um bind-
indismál.
„Heyr! Heyr!“ hrópaði einhver á-
heyrenda með rödd sem gaf til kynna
einlægan áhuga fyrir uppástungunni.
„Ég gleðst yfir því,“ hélt ræðu-
maður áfram, „að hér skuli þó að
minnsta kosti vera einn maður með
heilbrigðan og göfugan hugsunarhátt,
og vildi ég mega biðja þennan áhuga-
sama bindindismann að segja nokkur
orð héðan úr ræðustólnum."
„Ja, hver fjandinn," sagði sama
röddin og fyrr. „Ég bindindismaður!
Nei, ónei, ekki aldeilis. En tillögu yðar
styð ég vegna þess að ég er kafari."
★
„Þú ert einmitt tilvalið konuefni
handa mér, elskan. Eða kannastu ekki
við þennan málshátt: — Valmenni að-
hyllast eingöngu Ijóshærðar konur —?“
„Jú, ég hefi heyrt það. En ekki er
ég Ijóshærð."
„Nei, veit ég vel. En ég er heldur
ekkert valmenni.“
★
Ef þú ert ungur maður, þá getur
kona gert þig hamingjusaman eðá
óhamingj usaman.
Miðaldra ert þú, þegar kona getur
gert þig hamingjusaman, en ekki óham-
ingjusaman.
En þegar kona getur hvorki gert
þig hamingjusaman né óhamingju-
saman þá ert þú orðinn gamalmenni.
★
Stærðfræðikennarinn var orðinn
mjög gramur við Tomma litla, vegna
þess að hann gat ekkert dæmi reiknað
rétt.
„Þegar ég var á þínum aldri,“ sagði
kennarinn reiðilega, „þá gat ég auð-
veldlega reiknað miklu þyngri dæmi
en þetta."
Tommi litli var hinn rólegasti er
hann svaraði: „Ef til vill hafið þér
haft betri kennara en ég.“