Bergmál - 01.12.1955, Síða 21
1 9 5 5 ---------------------------
kona, sem lagði mest upp úr því
að vera álitin hreinlíf og siðsöm.
í stuttu máli sagt, líf hans var
vita gagnslaust en vel skipu-
lagt. Hann hafði komið ár sinni
vel fyrir borð, og stýrði fram
hjá öllum árekstrum. Hann las
engar hættulegar bækur, átti
engan metnað til að bera, um-
fram það, að vera talinn efnaður
heidri maður, lifði heilbrigðu
lífi, enda var hann vel upp alinn,
vel klæddur og fylgdist vel með
nýiuneum, bæði í klæðaburði
og slúðursögum. Yfirleitt fylgdi
hann jafnan þeirri reglu að
taka enga ákveðna afstöðu í
nokkru máli, fyrr en hann hafði
heyrt skoðanir stéttarbræðra
sinna í þjóðfélaginu.. Hann var
jafnan nýrakaður og vöxtur
hans var spengilegur og brjóst-
kassinn var svo myndarlegur að
jafnvel Ameríkani hefði verið
stoltur af.
Corambeau talaði oft um það
hversu nauðsynlegt það væri að
gæta heilsu sinnar vel, enda fór
hann oft í böð og stundaði bæði
nuddæfingar og heimaleikfimi.
Hann var af merkum ættum, og
sem drengur hafði hann verið
óvenju latur og hlédrægur. En
þegar hann stækkaði varð hann
einn af þessum ungu mönnum,
sem taldir eru öðrum til fyrir-
------------------- Bergmál
myndar í hæversku og prúð-
mannlegri framkomu, og eftir
að hann giftist var hann mjög
á verði um að halda uppi heiðri
fjölskyldu sinnar og heimilis,
enda þótt að hann héldi fram
hjá konu sinni, eins og áður er
sagt.
Madame Corambeau varð því
ekki lítið undrandi er hún opn-
aði dyrnar að svefnherbergi
manns síns einn morguninn og
sá hann skríðandi á fjórum fót-
um ofan á rúminu mjög fá-
klæddan. í annarri hendi hélt
hann á litlum borðfána og í
hinni hendinni hélt hann á borð-
bjöllu, sem hann hristi og skók
af barnslegri gleði.
„Látið mig í friði,“ hrópaði
hann.
Og svo smeygði hann sér í
flýti undir sængina, eins og
hann væri feiminn við konu
sína.
„Hvað gengur eiginlega að
þér,“ spurði Madame Coram-
beau.
„Klukkan er orðin tólf og þú
ert ekki enn kominn á fætur;
svaraðu mér Lucien.“
Hann leit óttasleginn á konu
sína.
„Hvers óskið þér, frú?“
„Hvað á þetta eiginlega að
19