Bergmál - 01.12.1955, Page 27

Bergmál - 01.12.1955, Page 27
Bergmál 1955 '<s>---------------------------e> Eftir þessari sögu var nýskeð gerð Republic-kvikmynd og voru aðalleikararnir í þeirri mynd GIG ÍOUNG, MALA POWERS, WILL- IAM TALMAN og EDWARD ARNOLD. Kvikmyndasaga þessi er spenn- andi og atburðaríkur harmleikur, sem gerist á einni nóttu í einhverri stórborg. Myndirnar, sem fylgja sögunni í Bergmáli eru teknar úr kvikmyndinni, sem Republic- félagið gerði. J>-----------------------------1 Þessa nótt í lífi stórborgar- innar var að minnsta kosti eitt hverfi sem ekki svaf, frekar en vant var. Madison Street var mikil umferðargata og að mörgu leyti sérkennileg. Við hana stóðu bæði stór og skuggaleg vörugeymsluhús og hrörlegir, gamlir leiguhjallar, en inn á milli voru glæstir, skrautlegir næturklúbbar, veitingahús og aðrir skemmtistaðir, og enginn skemmtistaður var eins skraut- lega upplýstur, gljáfægður og glitrandi, eins og Flamingó- klúbburinn. Flamingó-klúbburinn dró til sín mikið af gestum, með skrauti sínu og glæstum útbúnaði, enda var það staðreynd að þar var ódýrt að skemmta sér og vand- að var til sýningaratriða. Flest kvöld var hægt að hlusta þar á söng og hljóðfæraleik, eða horfa á dans og leiksýningar endur- gjaldslaust. Uppi yfir götudyr- um klúbbsins var hátalari sem auglýsti lystisemdir skemmti- staðarins, en auk þess bauð mönnum að taka þátt í getraun, sem sýnd var í sýningarglugga við innganginn í klúbbinn, en þeir sem voru svo heppnir að ráða þessa getraun á réttan hátt voru boðnir og velkomnir, sem gestir klúbbsins það kvöld. í þessum sýningarfflugga var einnig nokkuð, sem dró athvgli vegfarenda að sér. Það var mað- ur í fullri líkamsstærð, sem virtist vera vélrænn. Það glamp- aði á iárngrímuna og augun voru starandi, en þessi vélræni mað- ur pataði og benti, bæði með fótum og handleggium og alltaf voru það sömu hreyfing- arnar upp aftur og aftur. En sannleikurinn var sá að þessi maður var í raun og veru ekki vélrænn, heldur lifandi maður, enda þótt að eigendur skemmti- staðarins ályktuðu réttilega að fáir væru þeir, sem að gizkuðu á sannleikann í því tilfelli. En í stórborginni eru listamennirnir 25

x

Bergmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bergmál
https://timarit.is/publication/1971

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.