Bergmál - 01.12.1955, Blaðsíða 31

Bergmál - 01.12.1955, Blaðsíða 31
B ERGMÁL 1 9 55 ----------------------- sjálfsmeðaumkun. Fyrir löngu síðan hafði Johnny tamið sér það að hlusta á hvininn, þennan sérkennilega raddblæ, án þess að heyra orðaskil. Hann opnaði skúffu í borðinu og tók þaðan nafnspjald, sem var gyllt á röndum, en á því stóð aðeins Penrod Biddel og auk þess símanúmer. í þessari borg þurfti eigandi nafnspjalds- ins ekki að gera nánari grein fyrir atvinnu sinni eða þjóð- félagsstöðu. Hann var frægasti sakamálalögfræðingurinn á þess- um tíma. Johnny velti kortinu nokkrum sinnum milli handa sér, því næst tók hann upp símann og hringdi í þetta númer, sem stóð á spjaldinu. Hringingunni var svarað næstum samstundis, þjálfuð, þægileg og ákveðin karlmannsrödd muldraði „Pen- rod Biddel.“ „Þetta er Johnny Kelly, ég hefi breytt um skoðun, ég ætla að taka tilboði yðar.“ Svolítið hláturshnegg heyrð- ist í símanum. „Ég var næstum viss um að þú mundir ganga að því. Ég vil gjarnan hitta þig hér í íbúð minni, getur þú komið hingað í kvöld?“ Johnny játaði og sleit samtal- inu. Penrod Biddel var vanur því að tilboðum hans væri tekið athugasemdalaust. Johnny sat grafkyrr eitt and- artak, því næst tók hann sér pappír og umslag og fór að skrifa eitthvað með styrkri hendi og ákveðinn á svip. Það var upp- sagnarbréf stílað til lögreglu- stjórans. Hann var að segja upp starfi sínu. Er hann hafði skrif- að nokkrar línur hætti hann skyndilega, vöðlaði pappírnum saman og kastaði honum frá sér, því næst byrjaði hann að skrifa á nýja örk. Sönglandi óánægjurödd tengdamóður hans barst inn til hans framan úr eld- húsinu, gremjusvip brá fyrir á andliti hans, en að nokkurri stund liðinni virtist hann hafa lokið bréfinu. Tíminn leið óðfluga. Hann hraðaði sér í einkennisbúning- inn og fór út. Er hann kom fram í stigann var svo mikill asi á honum, að hann hafði nærri rekizt á Kathy. Hún var hæg- gerð og geðþekk kona, mjög lagleg, en jafnframt voru þreytu- drættir í andliti hennar sem sljófguðu svip hennar og drógu úr fegurðinni. Þegar hún sá Johnny birti yfir svip hennar og hún tók um handlegg hans. 29
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Bergmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bergmál
https://timarit.is/publication/1971

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.