Bergmál - 01.12.1955, Page 32

Bergmál - 01.12.1955, Page 32
Desember Bergmál --------------------- „Ég þarf að tala svolítið við þig, Johnny,“ sagði hún lágt. Hann hörfaði frá henni. „Ég held að þú hafir talað út í gær- kvöldi, og ef eitthvað hefir verið ósagt þá er móðir þín áreiðan- lega búin að margtyggja það, því að hún hefur ekki tekið sér málhvíld síðan ég kom inn.“ Hún gekk af stað á eftir hon- um niður stigann. „Farðu ekki alveg strax. Lofaðu mér að segja eitt orð við þig,“ sagði hún biðj- andi. Hann horfði á hana nokkra stund, eins og hann væri á báð- um áttum, hugur hans var allur í uppnámi. því næst beygði hann sig í áttina til hennar og kyssti á kinn hennar. Eitthvað í hreyf- ingum hans og framkomu skelfdi hana. Hann var svo óvenjulega hátíðlegur og einkennilegur á svip. Hún stóð góða stund eins og hún væri negld niður og ein- hver kvíði settist að henni, ein- hver fyrirboði óvæntra atburða, á meðan hún sá hann hraða sér niður stigann. Hún fann til enn meiri þreytu en áður og vissi að sér þýddi ekki að elta hann og því gekk hún hægum skrefum inn í íbúð sína. Strax og hún kom inn sá hún samanvöðlað blað við borðið, og vakti það athygli hennar. Hún gekk inn að borðinu og tók blaðið upp. Hún sléttaði úr því og á meðan hún var að því jókst kvíði hennar. Hún las eftirfar- andi setningu: „Herra lögreglu- stjóri. Ég vil hér með tilkynna yður þá ákvörðun mína ....“ Það gátu verið mörg hundruð ástæður fyrir því að lögreglu- þjónn skrifaði svo formlega til yfirmanns síns, en Kathy fannst samt sem áður að hún vissi fyrir víst hvernig framhald þessarar setningar hafði átt að vera. Örvæntingin greip hana helj- artökum og hún mundi í svipinn aðeins eftir einum einasta manni, sem gæti skilið hana og orðið henni til hjálpar, það var faðir Johnnys. Faðir Johnnys var aldurhniginn, gráhærður foringi í lögregluliði borgar- innar. Hann elskaði tengda- dóttur sína næstum eins mikið og hann elskaði son sinn. Hann var í trúnaðarstöðu hjá lögreglunni og aðalstarf hans var næturvaktir og var hann jafnan óeinkennisklæddur. Hún hrað- aði sér niður á stöðina til þess að ná tali af honum, áður en hann færi á vakt. Kelly, tengdafaðir hennar, fullyrti, að það væri útilokað að sonur hans væri að hugsa um 30

x

Bergmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bergmál
https://timarit.is/publication/1971

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.