Bergmál - 01.12.1955, Page 33

Bergmál - 01.12.1955, Page 33
1955 BercmAl að segja upp starfi sínu hjá lög- reglunni. „Ég er viss um að það er ekki rétt ályktað hjá þér,“ sagði hann. „Það er ekkert sérstakt, sem amar að Johnny. Hann á að vísu til að vera svolítið mislyndur eins og hver annar, en hann er traustur og öruggu maður, Kathy.“ En þegar hún hafði kvatt hann þá ákvað hann samt að fara og tala við Johnny og hann sá að hann mundi ef til vill geta náð honum á stöðinni áður en hann færi á vakt. Lögregluþjón- arnir voru einmitt að hafa vaktaskipti þegar gamli Kelly kom. Hann gekk til sonar síns og brosti til hans ástúðlega. „Ég var staddur hér niður á stöðinni af tilviljun. Mér datt í hug að leita þig uppi, sonur sæll,“ sagði hann. „Ég ætla að ganga út að bílskúrnum með þér.“ Johnny sagði fátt og föður hans fannst skynsamlegast að segja ekkert heldur. Hann var óánægður með framkomu sonar síns, og brátt kom að því að hann gat ekki orða bundizt. „Kathy er með áhyggjur þín vegna,“ byrjaði hann. „Er eitt- hvað að hjá ykkur, eða er það eitthvað í sambandi við starf þitt, eða hvað er það?“ „Það er ekkert út á starfið að setja,“ muldraði Johnny beisk- lega. „Ég er þegar orðinn stór- efnaður af þessum miklu laun- um. Það er engin smáræðis glæsileg framtíð sem ég á í vændum, og þótt þú segir að Kathy sé áhyggjufull mín vegna þá er það tómur misskilningur, ég ætti að vita það bezt. Það eina sem hún hefur áhyggjur af er hið mikilsverða starf hennar. Hún hugsar ekki um annað en þessa fínu stöðu sem hún hefur, aldrei kemst neitt annað að.“ „Hún elskar þig, Johnny, það er allt og sumt,“ svaraði faðir hans ástúðlega. „En ég hefi ef til vill gert rangt í því að tala við þig ástúðlega og vingjarn- lega. Þér myndi kannske geðj- ast betur að því að fá eitt vin- gjarnlegt hnefahögg í andlitið.“ bætti hann við reiðilega. „Helzt ekki í kvöld, pabbi,“ sagði Johnny og brá fyrir brosi á andliti hans. „Reyndu þá að hrista af þér ólundina,‘“ sagði gamli maður- inn. „Sjálfsagt," sagði Johnny og klappaði vingjarnlega á öxlina á gamla manninum. „Hafðu engar áhyggjur mín vegna,“ bætti hann við. Framh. á hls 35. 31

x

Bergmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bergmál
https://timarit.is/publication/1971

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.