Bergmál - 01.12.1955, Síða 35
B E R G M Á L
1955
AVA GARDNER.
fyrir að hann myndi fá, eftir fyrstu
sigurförina árið 1938. Höfuðorsökin til
þessa var sú að hann var í raun og
veru alltof ungur til þess að grípa
þau tækifæri, sem hann hefði átt að
geta gripið, því að hann var aðeins
tvítugur er hann skyndilega stóð í
frægðarljómanum. Auk þess var hann
of hlédrægur til þess að olnboga sig
áfram og grípa þau tækifæri, sem
hann hefði átt að geta fengið, ef þau
lágu ekki alveg fyrir fótum hans.
En hamingjan varð honum hliðholl
er hann hitti • kvikmyndastjórann
Billy Wilder, en hann hafði skrifað
kvikmyndahandrit, sem sýndi Holly-
wood í eins konar spéspegli. Aðalhlut-
verkið var beinlínis skrifað fyrir
Montgomery Clift, en Clift sagði
ákveðið nei við tilboðinu. Eftir það
reyndi Wilder marga aðra kvik-
myndaleikara í hlutverkinu en eftir
að hann hitti William Holden vissi
hann að hann hafði náð í rétta mann-
inn fyrir þetta hlutverk.
„Sunset Boulevard", varð upphafið
að langri röð kvikmynda með William
Holden í aðalhlutverkinu. Hann lék
til dæmis á móti Judy Holliday í leik-
ritinu „Fædd í gær“, og hann lék fang-
ann í kvikmyndinni „Fangabúðir
númer 17“. Fyrir leik sinn í þeirri
mynd fékk hann Oscarverðlaunin. Enn
fremur lék hann „stælgæjann“ á móti
Audrey Hepburn í „Sabrína" og ný-
skeð hefir hann lokið við að leika í