Bergmál - 01.12.1955, Page 36

Bergmál - 01.12.1955, Page 36
Desember \ B E R G M Á L tveim myndum á móti Grace Kelly, en það eru myndirnar „Brýrnar við Toko-Rí“, og „Maðurinn, sem þú gaíst nier“. Þá er hann einnig að leika í mynd á móti Jennifer Jones. Þegar talið berst að öllum þeim ástarhlutverkum, sem Holden hefur leikið, sem fyrsti elskhugi, þá segja Hollywoodbúar að hann hafi kysst fleiri fallegar kvikmyndaleikkonur, en nokkur annar leikari. Auk þeirra sem þegar hafa verið nefndar hefur hann til dæmis leikið á móti Ginger Rogers, June Allyson, Susan Hayward, Anne Baxter, Dorothy Lamour og orðið að khúskyssa þær allar. En þrátt fyrir það, að hann hafi fengið að kyssa allar þessar glæsilegu Hollywood-leikkonur hefir Holden aftur og aftur lýst því yfir að hann geti ekki hugsað sér ömurlegra held- ur en þessar ástarsenur. „Ég myndi miklu fremur vilja mylja grjót í hundruðum kvikmynda, eins og í fangelsismyndinni, heldur en að þurfa að sýna ástríðu og ást í leik iftínum." í ástarsenum verður leikarinn að treysta að öllu leyti á hugmyndaflug sitt, eðlishvöt og smekk, því að fólk lætur yfirleitt ekki í ljósi opinberlega slíkar tilfinningar. í hverju öðru at- riði sem kvikmyndaleikari kemur til með að leika hefur hann jafnan eitt- hvað sem hann hefir séð eða lesið um, til að styðjast við, svo að áður en hann gengur fram á leiksviðið hefur hann nokkurn veginn gert sér glögga grein fyrir því hvernig eigi að leika það hlutverk, sem honum er fengið. í ástarsenunum aftur á móti verður maður eingöngu að treysta á sína eigin hugkvæmni," segir William Holden og andvarpar. En þrátt fyrir þessar umkvartanir er ekkert útlit fyrir annað en að hann verði að þola það enn um hríð að leika ástarsenur fyrir framan kvikmynda- vélina, því að aðdáendaskari hans myndi aldrei leyfa honum að eyða hæfileikum sínum í neitt sem væri jafn órómantískt eins og að mylja grjót. Maður nokkur hringdi á lögreglu- stöðina og sagði að þjófar hefðu kom- izt í bílinn sinn. „Þeir hafa stolið stýrishjólinu, bremsunni, benzíngjöfinni, og mæla- borðinu öllu.“ Lögregluvarðstjórinn lofaði því að þetta mundi verða rannsakað, en þó varð ekkert af þvi, því að aðeins nokkrum mínútum síðar hringdi sím- inn á ný. Það var sami maðurinn. „Þér þurfið ekki að leita að þjófn- um,“ sagði maðurinn, og var nú með hiksta. „Ég hafði farið inn í aftur- sætið í ógáti.“ ★ Maður nokkur á mótorhjóli ók skyndilega út af veginum, beint yfir dálítinn grasflöt, þaut í gegnum girð- ingu, og stöðvaðist að lokum á stein- vegg. Mótorhjólið fór í smá-mola, og sjálfur var hann allur meira og minna skrámaður, eða svo fannst honum að minnsta kosti er hann raknaðí úr rot- inu. Þegar hann opnaði augun sá hann litla telpu sem stóð við hlið hans og hélt í höndina á yngri bróður sínum. „Manni,“ sagði litla telpan. „Viltu gera þetta aftur. Hann Árni litli hefur aldrei hlegið svona mikið fyrr.“ 34

x

Bergmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bergmál
https://timarit.is/publication/1971

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.