Bergmál - 01.12.1955, Síða 37
1955
Bergmál
Næturlíf stórhorgarinnar
Framh. af bls. 31.
Þegar gamli maðurinn gekk á
brott sneri Johnny sér við og
gekk yfir að lögreglubílnum,
sem hann átti að hafa til afnota
um nóttina. Nætur-eftirlitsbíl-
arnir stóðu nú í langri röð til-
búnir að leggja af stað, til þess
að hafa eftirlit með næturlífi
stórborgarinnar. Félagi hans,
sem átti að vera með honum
þessa nótt var miðaldra maður,
sem Johnny þekkti aðeins í
sjón. En sá, sem að venju var
með honum á vakt var veikur.
Þeir heilsuðust kurteislega og
formlega og Johnny settist í
ökumannssætið. Andartaki síð-
ar rann bíllinn af stað út á göt-
una, þar sem hann átti nætur-
langt að líta eftir og fylgjast
með næturlífinu, þefa uppi lög-
brjóta og koma í veg fyrir hvers
konar ofbeldi eða rangsleitni.
Þeir óku hægt um göturnar og
öðru hverju heyrðist í sendi-
tæki þeirra ýmsar fyrirskipanir
til annarra eftirlitsbíla. Götu-
slagsmál fyrir bíl 182. Innbrot
fyrir bíl 625. En engar fyrirskip-
anir komu til bíls Johnnys, sem
var númer 749.
Skyndilega stöðvaði Johnny
bílinn er þeir voru staddir í
einu af beztu íbúðarhverfum
borgarinnar. „Ég á einkaerindi
hér í næsta hús,“ sagði hann.
„Væri þér sama þó að þú biðir
eftir mér í bílnum hér í nokkrar
mínútur?"
Aðstoðarmaður Johnnys leit
sem snöggvast á hann svolítið
undrandi yfir þessu, sem að
vissu leyti var brot á starfsskyld-
unum, en slíkt var að vísu ekk-
ert einsdæmi, svo að hann gerði
enga athugasemd.
Johnny gekk inn í stóra sam-
byggingu og fór með lyftunni
upp á efstu hæð, en þar barði
hann að dyrum á stórri og glæsi-
legri íbúð.
Penrod Biddel kom þegar til
dyra. Hann var feitur, ljótur
maður, sem virtist vera um
fimmtugt. Hann bauð gest sinn
velkominn, en í svip hans mátti
lesa bæði kænsku og sigurglott.
„Gerðu svo vel að ganga inn,
Johnny,“ sagði hann. „Við verð-
um hér aleinir, og ótruflaðir.“
Hann gekk yfir að litlu vín-
borði úti í horninu. „Má bjóða
þér vínglas,“ spurði hann.
„Ég er í vinnu,“ svaraði
Johnny stuttaralega.
Biddel hélt á glasi í hendinni
og starði hugsandi á gest sinn.
„Þú ert í vinnu. Já,“ sagði