Bergmál - 01.12.1955, Page 46

Bergmál - 01.12.1955, Page 46
Desember B E R G M Á L Hún var lafmóð og greip andann á lofti, en reikaði þó stöðugt áfram, þar til gripið var harkalega í öxl hennar. Hún féll sam- stundis til jarðar og lá máttfarin í götunni. 21. kafli. Tálbeitan. Christine lá grafkyrr á jörðunni með lokuð augun og gekk upp og niður af mæði. Hún var algjörlega máttvana eftir þennan síðasta endasprett. Er hún loks opnaði augun beygði doktor Faber sig yfir hana, en að baki hans stóðu félagar hans í hóp, hörkulegir og grimmdar- legir menn, klæddir bláum sjómannsbúningum og í sjóstígvélum. „Standið á fætur,“ skipaði doktor Faber, og einhvern veginn tókst Christine að standa upp, þótt henni finndist allt hringsnúast fyrir augum sér. Doktor Faber gerði enga tilraun til þess að rétta henni hjálpar- hönd, og ekki var að sjá neina samúð í hörkulegum augum hans er hann horfði á hana. Hann var nú algjörlega óþekkjanlegur sem hinn glaðlyndi, smávaxni læknir, eins og hún hafði kynnzt hon- um heima í hælinu. Djúpir hörkudrættir sáust í kringum munn hans og augnatillit hans var kalt og fjandsamlegt. „Þetta var heimskulegt af yður, doktor Dunbar,“ sagði hann við hana. „Meira að segja mjög heimskulegt. Þér gerið þó ekki ráð fyrir að ég leyfi yður að koma í veg fyrir að ákvarðanir mínar nái fram að g'anga, eða hvað?“ Christine starði á hann skelfingu lostin og orðlaus. „Ég skil yður ekki.“ „Ekki það?“ sagði hann og brosti grimmdarlega. „Ég geri ráð fyrir að þér hafið legið á hleri góða stund, og þér munið án efa vita það, nú, að vinur yðar Mordaunt er ennþá þarna inni í hellinum. Við ætlum að ná honum á lífi, og við megum engan tíma missa. Komið þér.“ 44

x

Bergmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bergmál
https://timarit.is/publication/1971

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.