Bergmál - 01.12.1955, Side 49
1955
Bergmál
„Mordaunt er ekki veikur,“ svaraði Faber grimmdarlega. „Og
hann þjáist ekki af minnisleysi. Hann er mjög hættulegur svikari."
Allar hugsanir hringsnerust í höfði Christine, og hún vissi ekki
hvort hún gæti trúað því sem Faber sagði, en skyndilega fannst
henni hún vita skýringuna á því hvers vegna foringinn úr flug-
málaráðuneytinu hafði haft svo mikinn áhuga fyrir Tony. Og jafn-
framt fannst henni hún geta gizkað á ástæðuna fyrir því að Faber
væri að reyna að smygla honum á brott, áður en flugliðsforinginn
næði í hann.
Tony hafði ekki svikið föðurland sitt, Bretland. Hann hafði aldrei
verið svikari. Hann hlaut að vera í brezku leyniþjónustunni, og
þegar gefin hafði verið út tilkynning um það að hann hefði gerzt
liðhlaupi, þá var það vafalaust til þess að gera honum kleift að
taka að sér hið hættulega verk, sem hann hafði tekizt á hendur,
og svo hafði hann misst minnið, vegna þess að áreynslan hafði
revnzt of mikil fyrir hann, þessa mánuði sem hann var útlagi af
sjálfsdáðum.
Þetta gaf skýringu á öllu eða næstum öllu, og doktor Faber var
aftur á móti samkvæmt eigin játningu njósnari fyrir einhverja
óvinaþjóð. Hún myndi ekki ginna Tona með falsi til þess að gefa
sig á vald þessum samvizkulausu hrottum, aðeins til þess að bjarga
eigin lífi, en hún varð líka að hugsa um það að bjarga lífi Tona.
Christine virti fyrir sér þennan mann, sem stóð augliti til aug-
litis við hana. Henni varð það ljóst, að ef hún neitaði að gera eins
og hann skipaði henni, þá mundi hann standa við hótun sína að
skjóta Tona, þar sem hann var.
Hið eina sem hún gat gert var að láta svo sem hún gengi inn á
að gera eins og hann fyrirskipaði, ef henni mætti á þann hátt tak-
ast að tefja tímann í von um að hjálp bærizt fljótlega. Hver veit
nema það væri einhver von ennþá að koma Tona undan, ef hún
kæmist til hans?
Hún hljóðaði upp yfir sig af sársauka er doktor Faber þrýsti
handlegg hennar grimmdarlega svo neglur hans mörðu hold
hennar.
„Ég bíð svars,“ muldraði hann grimmdarlega. „Ætlið þér að fá
hann til að koma út úr hellinum?“
47