Bergmál - 01.12.1955, Page 50

Bergmál - 01.12.1955, Page 50
Desember Bergmál ------------------------------------- Hún kinkaði kolli og kom ekki upp nokkru orði. „Komið þá þessa leið.“ Hann hélt enn um handlegg hennar og hálf dró hana með sér inn í hellismunnann og að nokkrum klettasyllum þar sem virtist vera hægt að klifra upp undir þak hellisins. ,,Þá getið þér farið að klifra á ný, doktor Dunbar. Og munið það að ég verð aftan við yður með þetta hérna,“ sagði hann og sýndi henni skammbyssuna, sem hann hélt á í hendinni. „Hin minnsta tilraun til undankomu, eða eitt orð af vörum yðar til aðvörunar verður endurgoldið með því að ég skýt yður fyrst og síðan hann.“ Christine klifraði áfram í myrkrinu, aldrei mundi hún verða svo gömul að hún gleymdi þessu kvöldi. Hendur hennar voru rifnar og blæðandi af hvössu grjótinu, en hægt og erfiðlega hélt hún samt áfram, en doktor Faber kom fast á eftir henni, og grimmdarleg rödd hans rak hana áfram miskunnarlaust ef hún hikaði við, eða reyndi að hvíla sig. Brátt komu þau upp undir brún klettanna og þá skipaði hann henni að byrja að klifra niður á við aftur þar til Christine var að lokum komin niður á svolitla klettasyllu framan við koldimman hellismunna, en þar inni faldi Tony sig, eftir því sem Faber sagði henni. Þessi klettasylla var framan á þverhníptum björgum og sá hún aðeins upp í heiðan himininn og sjó á þrjár hliðar. Hún hevrði skvampið niðri í fjöruborðinu fyrir neðan sig og sá klettanibbur upp úr sjónum hér og hvar. Christine féll niður á klettasylluna titrandi frá hvirfli til ilja og hið eina sem hún gerði sér Ijóst var það, að þessi hræðilega ferð hennar væri nú á enda. Doktor Faber stökk niður á sylluna við hlið hennar og var hann mjög móður eftir áreynsluna. Á klettasnös fyrir ofan þau biðu tveir af hinum útlendu sjómönnum og sá Christ- ine að annar þeirra hélt á riffli í höndum sér. „Standið á fætur,“ skipaði Faber. „Farið inn í hellismunnann og kallið til Mordaunts. Segið honum hver þér eruð og að þér séuð alein. Við munum fylgjast vel með öllum hreyfingum yðar, og ef þér gerið nokkra minnstu tilraun til þess að vera með hrekki .... “ Hann lauk ekki við setninguna, en benti upp til hermannanna tveggja. „Haldið áfram,“ sagði hann svo. 48 —

x

Bergmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bergmál
https://timarit.is/publication/1971

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.