Bergmál - 01.12.1955, Page 58

Bergmál - 01.12.1955, Page 58
Desember B E R G M k L---------------- um komizt af upp á gamla mát- ann hingað til, án þess að bíða tjón af.“ Hinar konurnar komu einnig með sínar athugasemdir. Frú Hope-Carey naut ekki hylli þeirra. Um leið og Sara Crump renndi tei í bollann sinn sagði hún bálvond: „Ef nefndin hefur gnægð peninga, sem hún endilega vill losna við, ætti hún heldur að nota þá til einhvers sem hlýjar okkur innvortis. Hvað varðar okkur um þó hún segi að við þurfum þetta eða hitt? Ena hefur á réttu að standa. Gamli mátinn hefur nægt okkur hing- að til, án þess nokkurri okkar hafi orðið meint af. Ölið sem við fáum með matnum er bragðlaust gutl. Þau ættu heldur að nota peningana til einhvers sem gagn væri að. Og svo eru það brjóst- sykursmolarnir á laugardögum.“ Hún hallaði sér reiðileg fram á borðið yfir teketilinn. ,.Á fá- tækrahælinu í Wilchester,“ hvíslaði hún með áhérzlu. „fá þær kvartpund lakkrís eða tyggigúmmí; þær geta fengið hvort sem þær vilja.“ Allar konurnar hrópuðu upp yfir sig af undrun og öfund. Þær voru í svörtum kjólum með hvítar smekksvuntur og hvítan rykktan kappa á höfði. Engin þeirra hafði neitt hár svo talizt gæti nema Sara Crump. Hvort sem það var vegna þykku, gráu. fléttanna hennar, hinnar orð- hvötu tungu hennar eða hinna dökku, snöru augna, þá var hún viðurkennd forustukona þeirra. Það var hún sem varð fvrir svörum þegar nefndarmeðlimir komu í heimsókn og hvöttu konurnar til að bera fram óskir sínar. Það var henni að þakka, að þær fengu niðursoðinn lax á sunnudögum í staðinn fyrir kaldan, bakaðan fisk. Það var líka hún sem hafði fengið leyfi fyrir þær allar, til að mega sofa í sokkum. Nú byrsti hún sig: „Við viljum ekki sjá þetta. Ég þori að veðja, öllum gimstein- unum mínum upp á það, að það er henni að kenna að við fáum ekki lengur sunnudagsblöðin, og að það hefur verið hún, sem hefur útvegað þessar heimsku- legu, rykktu hettur á okkur. Hún hefur prestinn alveg í vasanum, enda sézt hann hér aldrei orðið. Við viljum ekki sjá þetta sem hún ætlar að skikka okkur til að nota.“ „Við getum ekki hindrað hana í að láta koma því fyrir,“ 56 —

x

Bergmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bergmál
https://timarit.is/publication/1971

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.