Goðasteinn - 01.09.2005, Side 68
Goðasteinn 2005
kot (hjá Tubal) og Árkvörn. Víðast var unnt að fá hest og jafnvel fylgdarmann og
rúmið kostaði oftast tvær kr.
Hótelrekstur í Múlakoti
Skal nú getið nokkurra staðeynda sem varpa ljósi á blómatíma hótelreksturs í
Múlakoti.
Fyrstu lög um veitingasölu, gistihúsahald o.fl. gengu í gildi sumarið 1926. Þar
kemur fram að nú þurfti formlegt leyfi fyrir þannig rekstri að viðlögðum sektum.
Leyfi fyrir veitingarekstri kostaði kr. 150 en leyfi til gistihúsahalds kr. 200. Þeir
sem þegar höfðu þannig rekstur á hendi máttu halda rekstrinum áfram.
Það fer varla á milli mála að hjónin í Múlakoti, Guðbjörg Þorleifsdóttir og
Túbal Magnússon, töldu sig í hópi þeirra sem þegar höfðu gistihúsahald á hendi.
Þau höfðu tekið við ábúð á jörðinni 1896 af foreldrum hennar og keyptu jörðina
1916 af erfingjum Vigfúsar Þórarinssonar sýslumanns, föður Bjarna skálds, sem
bjó á Hlíðarenda í upphafi 19. aldar og eignaðist margar jarðir í Fljótshlíð.
Það er varla tilviljun að byrjað var að rita í elstu gestabók sem varðveist hefur í
Múlakoti hálfum mánuði eftir að lögin tóku gildi. Sjálfsagt hefur verið rætt um
aukið eftirlit með gististöðum og bókhald og hvers kyns skýrsluhald í tengslum
við lagasetninguna. I ágústmánuði einum árið 1926 eru 318 nöfn skráð í bókina.
Sumarið 1927 eru skráð 1178 nöfn alls, einkum sumarmánuðina þrjá, júní, júlí og
ágúst.
Þessi mikli gestafjöldi verður enn merkilegri þegar haft er í huga að húsið,
bárujárnsklætt timburhús byggt 1898, var aðeins 55 fermetrar að grunnfleti og í
heimili voru 8-10 manns.
Haustið 1927 var tekin ákvörðun um að stíga skrefið til fulls og byggja við
gamla húsið sérstaka byggingu fyrir veitingareksturinn. í nýja húsinu var
rúmgóður veitingasalur, sæmilega stórt eldhús, býtibúr og tvö gistiherbergi í risi.
Grunnflötur hússins var um 60 fermetrar.
Ólafur Túbals, sonur þeirra hjóna, var liðlega þrítugur þegar veitingahúsið var
byggt. Hann bjó í Múlakoti hjá foreldrum sínum ásamt konu sinni, Láru
Eyjólfsdóttur. Varðveist hefur samantekt hans yfir greiðslur vegna húsbyggingar-
innar og af þeim lista að dæma virðist hann hafa borið hitann og þungann af
kostnaðinum. Samkvæmt listanum virðist húsbyggingin hafa kostað 7.451,48. Af
þeirri upphæð er sem Túbal hafi greitt 10%. Túbal tók þó bankalán þetta ár og
gæti hafa notað það að hluta til í húsbygginguna auk þess sem hann borgaði upp
Múlakot í Fljótshlíð
-66-