Goðasteinn - 01.09.2005, Síða 142

Goðasteinn - 01.09.2005, Síða 142
Látnir 1998-2003 Goðasteinn 2005 starfa. Honum lék margt í hendi og var í öllu velvirkur. Smíðahanda hans naut víða við bæði í stóru og smáu og í 35 haust vann hann hjá Sláturfélagi Suðurlands í Djúpadal, lengst af sem kjötmatsmaður. Aslaug Fanney Ólafsdóttir var fædd í Skálakoti, Vestur-Eyjafjöllum, 6. maí árið 1917. Foreldrar hennar voru þau hjón Ólafur Eiríksson og Guðrún Nikólína Snorradóttir, búendur í Skálakoti. Af systkinum Fanneyjar eru látin þau Bjarni, Kjartan, Sveinjón og Laufey. Eftir lifa systur hennar, Lilja og Ólína. Guðrún Nikólína móðir þeirra lést langt um aldur fram frá fjölskyldu sinni. Þá var Fanney rétt á unglingsárum. En fjölskyldan stóð saman. Það var úrræði þess tíma. Vinna og atorka fylgdi fólkinu síðan. Fanney varð starfsmanneskja, verkviljug þannig að undan gekk. Hún átti líka þann listastreng sem naut sín oft í góðum handverkum. Óskar og Fanney áttu fyrst leiðir saman í Fljótshlíðinni. Þau gengu síðan í hjónband 19. maí árið 1945. Þau náðu því að verða góðir vinir, áttu saman áhugamál og lífsskoðanir. Þau settust að á Lambhúshóli skammt frá æskustöðvum Fanneyjar og stóðu saman að því að byggja upp bústofn og húsakost og gátu verið stolt af. En sá sári harmur mætti þeim þar að Ólafur Elí, þá yngsta barn þeirra, lést af slysförum rúmlega tveggja ára. En barnalán áttu þau og nutu þess í þakklæti. Ástrún Svala er þar elst, lengst af húsfreyja og bóndi, gift Magnúsi Borgari Eyjólfssyni bónda á Hrútafelli undir Austur-Eyjafjöllum en í dag eru þau búsett á Selfossi. Þá er Snorri bifvélavirki, kvæntur Steinunni Guðbjörgu Bjarnadóttur, útivinnandi og húsmóðir, en þau bjuggu lengst af á Hvolsvelli en eru nú búsett í Hafnarfirði. Anna útivinnandi hús- móðir, gift Má Guðnasyni húsasmið og formanni verkalýðsfélags Suðurlands, en þau eru búsett í Kirkjulækjarkoti í Fljótshlíð. Yngst er Elín Ósk óperusöngkona en hennar maður er Kjartan Ólafsson tónlistarmaður og eru þau búsett í Hafnarfirði. Bamabörnin 13 og barnabarnabörnin 17 voru þeim þakkarefnið mesta. Óskar og Fanney kunnu það með reynsluna á herðum að þakka. Þroski lífsins kemur oft með því sem þarf að takast á við. Slík er oft miskunn Guðs sem leggur líkn með þraut. Árið 1961 fluttu þau að Rauðalæk, síðan að Djúpadal og bjuggu þar í fjögur ár, settust síðan að á Hvolsvelli í nokkur ár og keyptu þá Sunnuhvol en íbúðarhúsið þar byggðu þau upp frá grunni. Á Sunnuhvoli varð gott heimili þeirra og glað- værð í húsi. Um það voru þau samhent og kunnu bæði vel til þess. Báðum var unun af því að hlusta á söng og hafði Óskar sérlega fallega söngrödd og var þar af leiðandi mjög eftirsóttur kórfélagi. Þau kunnu sálmana sína og mátu þá mikils. Haft var á orði að Fanney kynni utanbókar alla sálmabókina. Þau héldu alltaf reiðhesta, kunnu þar vel til verka og nutu ákaflega. Fanney hélt heimili þeirra þannig að þar var kunn rausn og gestagleði en utan heimilis vann hún mörg haust við Sláturhúsið í Djúpadal. -140-
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164
Síða 165
Síða 166
Síða 167
Síða 168
Síða 169
Síða 170
Síða 171
Síða 172
Síða 173
Síða 174
Síða 175
Síða 176
Síða 177
Síða 178
Síða 179
Síða 180
Síða 181
Síða 182
Síða 183
Síða 184
Síða 185
Síða 186
Síða 187
Síða 188
Síða 189
Síða 190
Síða 191
Síða 192
Síða 193
Síða 194
Síða 195
Síða 196

x

Goðasteinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1974

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.