Goðasteinn - 01.09.2005, Page 161

Goðasteinn - 01.09.2005, Page 161
Goðasteinn 2005 Látnir 2004 legu verkefni sem búskapurinn bauð upp á. Jörðin var meðalstór en landið gaf af sér nægilegan arð til að fjölskyldunni var séður farborði. Ingvar var atorkumaður og hlífði sér ekki við störfin, margur langur vinnudagur kom í hlutskipti hans og í ljósi sögunnar má segja að hann hafi í raun ofboðið heilsu sinni, enda ákafamaður og óvæginn gagnvart sjálfum sér. Hann hafði yndi af skepnum og var góður bóndi en heilsan var ekki nægilega góð til að hægt væri að halda áfram. Mjaðmirnar voru honum erfiðar og ýmislegt annað leiddi til vissrar hreyfihömlunar, þannig að tíminn kom að punktur var settur. Fjölskyldan flutti suður árið 1973 og var jörðin seld. Ingvari og Sigríði fæddist einn sonur, Elías, þann 20. apríl 1950. Var það mikill og stór viðburður og þeim hjónum til ómældrar gleði og hamingju. Má geta sér til um hvflík þáttaskil þetta hafa verið, ætla má að móður- og föðurumhyggja hafi verið stór, jafnvel áhyggjur tengdar velferð og uppeldi eins og eðlilegt er. Samband þeirra foreldranna við Elías var alla tíð náið og gagnkvæmt, einnig eftir að hann giftist Guðnýju Margréti Ólafsdóttur. Nálægðin var þeim mikilvæg og gleðin gagnvart því að fá að sjá sonardæturnar Ólöfu Jónu og Sigríði Birnu vaxa upp var mikil. Sigríður andaðist í des. 2001, var það mikið áfall fyrir Ingvar en hann hafði annast konu sína af natni og alúð í veikindum hennar. Hann hafði þó í raun endurheimt heilsu sína og fengið góðan bata, var til og með starfsmaður hjá Sambandinu um ára skeið eftir að hann flutti suður. Var alla tíð vel að sér í málefnum líðandi stundar, athugull og stálminnugur, hélt andlegri heilsu óskertri til hinstu stundar og var vel að sér um ýmsa hluti. Ingvar var maður jafnlyndur, geðprúður en ákaflega drífandi. Vildi hann ekki vita af neinum óheilindum, allt skyldi vera í skorðum og sínu rétta samhengi. Hann var barngóður og nærgætinn og þó að hann stundaði erfiðisvinnu stóran hluta æfinnar varðveitti hann fágaða og fíngerða strengi í framkomu sinni og umhyggju, gaf sér tíma þegar þess var þörf og gaf einnig gjarnan sínum nánustu góðar gjafir. Eigin þarfir voru ekki í fyrirrúmi, hann var maður nægjusamur og ánægður með sitt hlutskipti, þó oft þyrfti hann að vinna hörðum höndum á lífs- leiðinni. Ættingjar og samferðamenn kveðja og þakka samfylgdina, Ingvar óskaði ekki eftir miklu hrósi eða stórum orðum, vilda láta umsögnina um sig vera stutta og lausa við prjál og lofyrði. Hann leit á lífið sem þjónustu í þágu fjölskyldu sinnar, þjóðar og samfélags og vænti ekki hróss fyrir sakir þeirra hluta sem hann taldi eðlilega og sjálfsagða. Heiðursmaður var Ingvar meðan hann lifði og heiður skal fylgja minningunum að honum látnum. Ætla má að hugurinn hafi alloft hvarflað til heimaslóðanna hér eystra. Var Ingvar hér á ferðinni þegar tækifæri gafst og var sjálfgefið hvar hvílustaðurinn hinsti yrði honum búinn þegar kallið mikla kæmi. í Skarðskirkjugarði hvílir -159-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1974

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.