Stjörnur - 01.02.1950, Blaðsíða 4
????????????? ?????? ????????????
??????? ???????????? ????????????
Okkar á milli
????????? ? ? ????999??99999999999
9 9 9 9‘9 9999999999999999999
Sönglagatextiir. — Öðruhvoru berast
okkur óskir uni að birta söngtexta, eink-
ura ljóð við tlægurlög, sem sungin eru í
útvarpið. Við höfum ekki getað orðið
við þessum óskum, hversu vel sem beðið
liefur verið. 1 c-.xtarnir eru auðvitað eign
þeirra, sem há hafa samið eða látið semja.
Dægurlög þessi cru öðruhvoru gefin út
í heftum og vilja útg. þeirra og eigend-
ur að sjálfsögðu vera einir um þá hitji.
Einn bréfri..ari, sem á þetta minnist,
ræðir um söngvalag sumra dægursöngv-
ara, er látið hafa lil sín heyra í útvarpi:
„Prestur einu á suðurlandi hneykslast
mjög á því hternig sumar stúlkur bcita
rödd sinni, er syngja með strengjahljóð-
færaundirleik." Bréfritari spyr hvað við
leggjum til þess máls.
Svar: Við erum prestinum sammála um
það. að söngl.reimur sá, er dægurlaga-
söngvarar — ei.okum stúlkurnar — hafa
taníið sér, sé mjög óíslenzkulegur og ein-
staklega ósmekklegur. Orðaáherzlur og
sönglag er enskl og amerískt. Það getur
vel verið að viss jasslög verði að syngja
með negraraddarhreimi, en gömul og
góð sönglög og ísl. ljóð og lög, eins og
t. d. „Ennþá brennur mér í muna'', ætti að
vera hægt að syngja á íslenzku og án
mjaðmahnykkjt frumskógafólks. Fyrir
nokkrum áraitigum átum við allt eftir
Dönum og þótti allt fínt, sem þaðan
kom, svo að menn fóru að „tyggja upp á
dönsku", eins og Jónas Hallgrímsson orð-
aði það. Nú er sama sagan að endurtaka
4 STJÖRNUR
sig með ensk amerísku áhrifin. Hinar
Norðurlandaþjóðirnar syngja dægurlög
með sínu heimalagi. Það ættum við líka
að geta gert.
Edda og Stella! Við höfum birt svo
margar myndir af Roy Rogers að und-
anförnu, að bað verður að nægja í bili.
í eklri heftum hefur birzt skrá yfir heim-
ilisföng, við höfum þessvegna hvílt okk-
ur frá því að svara öllum slíkum óskum
um tíma, en líklega verðum við innan
skamms að taka til við það að nýju,
vegna þeirra snm ekki halda blöðunum
saman, eða ero nú fyrst að komast á
Stjörnuakluriun. Mynd af John Wayne
kemur bráðlega, ennfremur lofum við
öllu góðu viðvíkjandi Robert Hutton og
Dean Stockwell. Sonju Hcnie höfum við
gert sæmileg i.íiil í bráð og myndir hafa
birzt af Vivien Leigh, grein um hana
skal koma fyrr en síðar.
Marlene Dietrich er fædd 27. des. 1904
í Berlín. Maðurinn hennar heitir Rudy
Sieber. Hún er ekki fastráðin hjá neinu
ákveðnu kvikmyndafélagi og getur því
ráðið sig til að leika einstök hlutverk
hvar sem henni sýnist. Það er kallað á
ensku að vera „freelancing". Bréf til
hennar mun óhætt að senda til þess
kvikmyndafélags í Hollywood, sem þú
veizt að hún hefur síðast starfað hjá,
sem stendur Metro Goldwyn Mayer.
Framh. á síðu 51.