Stjörnur - 01.02.1950, Blaðsíða 39
unt Titgríd
°9
RosseHni.
nokkurri manneskju? Henni er
það ljóst, að sem listamaður hef-
ur hún skildum að gegna við að-
dáendur sína. Hiin ann öðrum
manni en þeim sem hún er gift.
Hún hefur hreinskilnislega ját-
að það fyrir eiginmanni sínum og
beðið hann um skilnað. Hefði
hann farið að óskum hennar. svo
sem .eðlilegast hefði verið, myndi
hún strax hafa getað gifzt þeim
manni, sem hún nú elskar.
Rossilini kvað það ekki þurfa
að vera neitt leyndarmál lengur,
að hann og Ingrid Berman ætli
að gifta sig strax og unnt sé. Haldi
dr. Lindström fast við ákvörðun
sína um það, að neita að fallast á
skilnað, mun Ingrid Bergman
láta evrópiskan dómstól leysa sig
frá hjúskap við dr. Lindström.
Þvermóðska hans getur tafið það
að við giftum okkur, en ekki kom-
ið í veg fyrir það, sagði Rosselini.
Spurningu yðar viðvíkjandi
Mynd þessi er tekin á eyjunni Stromboli,
þar sem þau voru að kvikmynda s.l. sumar.
amerískum blaðaskrifum um
vamtanlega barneign Ingrid Berg-
man finnst mér ekki ástæða til að
svara. Hvern skyldi varða um
það, hvort hún á von á barni eða
ekki?
Ingrid hefur tekið mjög nærri
sér allt það umtal sem skilnaðar-
mál hennar og ástarævintýri hef-
ur vakið. Er þessi nýi orðrómur
komst á kreik varð henni svo mik-
ið um það, að hún fékk taugaá-
fall og varð að vera undir læknis-
hendi.
★
Allra nýjustu frcttir.
Dr. Lindström mun nú hafa fall-
izt á skilnaðinn. Nokkurn tíma
mun þó taka að koma þessu öllu
um kring.
stjörnur 39