Stjörnur - 01.02.1950, Qupperneq 30
Róimuitíska vibn.
Ástarævintýri með gerfistjörnum fyrir 50 dollara.
MARGT ER skrítið í Har-
moníu og margt finna þeir upp
í Ameríku til þess að græða á.
I New York er fyrirtæki sem
heitir „Rómantíska vikan“. Fyrir
ákveðið gjald — 50 dollara —
tryggja þeir hverjum, sem hafa
vilja, sjö daga lúxuslíf. Og skrif-
stofustúlkurnar, afgreiðsludöm-
urnar og verksmiðjumeyjarnar
sem allt árið um kring verða að
kúldrast innan fjögurra veggja og
geta sjaldnast leyft sér að kom-
ast út fyrir borgina um helgar,
láta sig dreyma um nokkurra
daga rómantísk ævintýri í fögru
umhverfi, fjarri skarkala stór-
borgarinnar. Og ekki aðeins
stúlkurnar vilja borga drjúgan
skilding fyrir eina hamingjuviku
á ári. En einkum eru það þó
stúlkurnar, sem bíta á krókinn.
Það er heldur ekki sparað að
auglýsa vel þessa sæluviku. Stór
spjöld með glæstum myndum af
smáhúsahverfi með lystigörðum
og skemmtistöðum, eru hengd í
nágrenni verksmiðja og stórra
verzlunar- og skrifstofubygginga.
Þar eru skráðar með stóru letri
eftirfarandi spumingar:
„Viljið þér láta Clark Gable
bjóða yður velkomna eða óskið
þér frekar eftir að mæta Gary
Cooper? Hafið þér nokkuð á
móti því að hafa Esther Williams
fyrir borðdömu eða spila tennis
við Janette McDonald?
Og þetta kostar yður aðeins
50 dollara. Greiðið smátt og
smátt. Einn dollar á viku, og
yður er borgið!“
En einn dollar á viku er ekki
smápeningar fyrir fátækt fólk.
Hjá flestum vinnandi stúlkum er
það t. d. áttundi—tíundi hluti
vikulauna þeirra. Slíkt geta því
þeir aðeins leyft sér, sem ekki
hafa fyrir Öðrum að sjá en sjálf-
um sér, og því aðeins að þeir
neiti sér um allan munað og
skemmtanir allt árið. Vikulega
kaupir hann eða hún sér dollara-
miða. Þegar þeir eru orðnir 50
30 STJÖRNUR