Stjörnur - 01.02.1950, Qupperneq 33

Stjörnur - 01.02.1950, Qupperneq 33
borðið situr Dennis Morgan og hvíslar einhverju að fallegri stúlku, og rétt áðan gekk hún framhjá Nelson Eddy og döm- unni hans. Eftir kvöldverðin er dans úti í upplýstum aldingarðinum og þá hefur hún kannski týnt Van Johnson, en Errol Flynn hefur fundið hana, og hvíslar að henni í dansinum: „Þér eruð yndisleg- asta stúlkan í heiminum, ef ég þyrði myndi ég bera yður á örm- um mínum þangað sem við gæt- um verið saman ein.“ En auðvit- að þorir hann það ekki. En alla ævi sína mun María okkar minn- ast þess, að Errol Flynn hefur sjálfur sagt þetta. í tungsskininu er svo farið í ýmsa leiki til tilbreytingar. Herr- an rænir öðrum skó þeirrar stúlku, sem hann er hrifnastur af, hún verður sjálf að fara og leita hans úti í skóginum. Og það gerir hún. Þar sem skórinn er er einnig unga manninn að finna — og himnaríki á jörð. OG ÞANNIG líður vikan eins og í draumi. Alltaf er eitthvað nýtt og óvænt að ske, tilbreyttnin er takmarkalaus. Þetta fyrirtæki er rekið eftir mjög ströngum og nákvæmum reglum. Staðgengl- ar kvikmyndastjarnanna eru fast- ráðnir starfsmenn og einn tekur við af öðrum að leika sitt hlut- Pat Fitzgerald verk, eins og' í sjónleik. Hin allra ófríðasta stúlka fær jafn marga aðdáendur og hin fallega, öllum er gert jafnt undir höfði, sem greitt hafa sinn aðgangseyri að paradísinni. En auðvitað verða þessir herrar að vera mannþekkj- sxjöenus 33

x

Stjörnur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjörnur
https://timarit.is/publication/1910

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.