Stjörnur - 01.02.1950, Blaðsíða 6
Iktm ^eridfliY
fer í mál við Metro.
ANN SHERIDAN, þaff er nú
kerling sem segir sex. Það hefur
hún sannað áþreyfanlega, nú fyr-
ir skömmu. Hún hefur nefnilega
farið í skaðabótamál við RKO-
kvikmyndafélagið og vill láta
dæma sér 350.000 dollara, sem
hún telur sig hafa tapað, vegna
brigðmæla frá hendi kvikmynda-
félagsins.
Ann er samningsbundin RKO,
en þannig, að aðaltekjur sínar
hlýtur hún fyrir hverja einstaka
mynd sem hún leikur í, föstu
launin eru tiltölulega lág á stjörnu
mælikvarða, eiginlega aðeins
nokkurskonar trygging.
Hún segir að félagið hafi boðið
sér aðalhlutverkið í myndinni
„Corriage Entrance11, þar sem
Robert Young átti að leika á móti
henni. En þegar til kom kærði
Robert sig ekki um hlutverkið og
var þá stungið upp á öðrum í hans
stað, komu fimm leikarar eink-
um til tals, og meðal þeirra Robert
Mitchum. Ann Sheridan kveðst
fyrir sitt leyti hafa fallizt á þessa
breytingu, enda þótt í samningn-
um við sig hafi svo verið ákveðið,
að hún léki á móti Robert Young.
En nú brást félagið svo við
þessu, að það valdi Robert Mitc-
hum og Ava Gardner í aðalhlut-
verkin og braut þar með gerðan
samning við Ann Sheridan, að því
hún telur.
Samkvæmt samningi átti Ann
að fá 150.000 dollara fyrir leikinn,
sem gert var ráð fyrir að yrði
fjögurra mánaða vinna. Auk þess
átti hún að fá 10% af nettótekj-
um félagsins af myndinni, og það
áætlar hún að myndi hafa orðið
a. m. k. 200.U00 doilarar. Þess-
vegna krefst hún, eins og áður er
sagt, 350.000 dollara í skaðabæt-
ur.
Líkindi eru til að sættir verði
í málinu og Ann Sheridan fái í
sárabætur annað gott hlutverk,
en hætt er við að hún verði ekki
ellidauð í þessari vist, því kvik-
myndaherrunum er ekki um það
gefið að staðið sé upp í hárinu á
þeim.
6 STJÖRN'UR