Stjörnur - 01.02.1950, Qupperneq 12
Clark Gable giftir sig.
ÁRIÐ 1937 hóf kona nokkur í
Englandi málaferli gegn Clark
Gable og hélt því fram í fullri al-
vöru, að hann væri eiginmaður
sinn, sem skotizt hefði frá sér og
ungum börnum þeirra fyrir nokkr
um árum. Hún hafði séð Clark í
kvikmynd og þóttist ekki þurfa
frekari vitnanna við, þarna væri
kominn strokumaðurinn hennar.
Clark fullyrti raunar'að þetta
hlyti að vera eitthvað málum
blandað hjá konunni, hann hefði
aldrei heyrt hana né séð, auk þess
hefði hann aldrei til Englands
komið á því tímabili, sem hjú-
skapur og barngetnaður þessi
hefði átt að eiga sér stað.
En auðvitað dugðu ekki mót-
mælin ein, enska kerlan lét sér
þau ekki nægja. Hún krafðist rétt-
arrannsóknar, og undan því gat
Clark ekki slcotizt.
En Clark reyndist auðvelt að
sanna sakleysi sitt. Á umræddum
árum var hann starfsmaður við
timburhögg í Bandaríkjunum og
eitt af sönnunargögnunum, sem
fram voru lögð, var kvittun fyrir
vikulaunum hans og — þau voru
ekki há. En síðan það var voru
liðin 15 ár og margt hafði drifið á
daga Clark Gable á þeim árum
— en börnin í Englandi héldu á-
fram að vera föðurlaus.
★
Þessi saga rifjast nú upp, er
gifting Clarks og Sylviu Ashley
hefur verið gerð heyrum kunn, en
hún er ensk hefðarmær og fyrr-
verandi kona Douglas Fairbanks
kvikmyndaleikara, fræg kona í
enskum og amerískum kvik-
myndaheimi.
En þótt margt hafi verið ritað
um Clark Gable eru ekki allir,
sem vita, að þetta er í fjórða sinn
sem hann giftir sig.
★
Clark er fæddur 1. febr. 1901 —
verður því fimmtugur á næsta
ári. — Faðir hans var starfsmað-
ur við olíuiðnaðinn í Cadiz í Ohio.
Hann hafði misst fyrri konu sína,
móður Clarks, en gifst aftur. Það
kom því í hlut ömmu litla Clarks
að ala hann upp, en auðvitað rétti
stjúpa hans gömlu konunni hjálp-
arhönd. Hún var nokkuð ströng
og siðavönd, fannst litla drengn-
12 STJÖRNUR