Stjörnur - 01.02.1950, Page 16

Stjörnur - 01.02.1950, Page 16
Fólksfjöldinn þyrptist til kvik- myndavers Metrófélagsins og allt ætlaði af göflunum að ganga. Þar inni sat Clark meðal gamalla kunningja, reykti pípu sína í „ró og mag“ og sagði frá atburðum úr stríðinu. Hann lét sem hann vissi ekki um öll ósköpin, sem á gengu úti fyrir. I það sinn lét hann ekki sjá sig. Næsta dag var hann kynntur fyrir Greer Garson, sem þá var mest dáða kvenstjarnan í Holly- wood, hún hafði sigrað kvik- myndaborgina og raunar allan heiminn á stríðsárunum. Nú var það ákveðið að þau Clark léku saman í fyrstu mynd hans eftir heimkomuna, hún hlaut nafnið „Ævintýri". Fyrstu kynni þeirra Clarks og Greer urðu mjög ástúðleg. Marg- ir myndatökumenn voru að sjálf- sögðu viðstaddir og þeir hrópuðu: „Kysstu stúlkuna, Clai’k“, „Taktu almennilega utan um hana, Clark“. Og' hvernig sem það varð, leyfði Greer honum að kyssa sig á munninn, það átti hvort sem var eftir að ské oft og mörgum sinnum í myndinni, og' Greer gat ekki neitað ljósmyndurunum um eftirsótta mynd. ★ Clark Gable hefur verið spurð- ur hvenær hann ætli að hætta að leika. Hann hefur svarað: — Spyrjið skósmiðinn hvenær hann ætli að hætta að vinna, spyrjið skáldið hvenær það ætli að hætta að yrkja. Ég er kvik- myndaleikari og ég ætla að vera það á meðan starfsþrek mitt end- ist og jafn lengi og fólk vill sjá mig. Þegar ég verð of gamall til að leika unga menn ætla ég að leika gamalmenni.11 ★ \ Clark Gable hefur ekki leikið í mörgum myndum síðan hann byrjaði aftur, enda kveður hann það ekki borga sig fyrir sig fjár- hagslega, að hafa of háar tekjur. Hann segist vilja njóta lífsins, ferðast og eiga náðuga daga, leika í einni mynd á ári — og nú hefur hann loks gift sig eftir 8 ára ekk- ilslíf. * * Maureen O’Hara er mjög á- hugasöm kjólasaumakona. Hún hefur sagt: — Ef ég hætti að leika ætla ég að setja upp kjólasauma- stofu og kjólaverzlun. Ég gæti bezt trúað, að ég hefði eins mikið upp úr mér við það eins og fyrir að leika, og kannski myndi ég ekki síður una mér við það. Sem stendur verður hún að hafa kjólasauminn í hjáverkum og líklega verður það nokkuð lengi. 16 STJCRNUR

x

Stjörnur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stjörnur
https://timarit.is/publication/1910

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.