Stjörnur - 01.02.1950, Page 27

Stjörnur - 01.02.1950, Page 27
ið, en stjórnandi hafði ekki gætt sín nógu vel, vegna þess að hinn vagninn skyggði á, tók hann ekki eftir barnahóp, er í þessum svif- um hafði stokkið út á veginn. Bílstjórinn steig á hemlana og vagninn skalf og nötraði, þeir sem stóðu, köstuðust til. Herra Helgel var óviðbúinn. Hann var nærri dottinn, en tók af sér fallið með því að styðja sig við stólsætið, en var svo óheppinn að lenda ein- mitt á skerminum, sem lagðist saman undir honum, eins og harmonikkubelgur. Það var því ekki að furða þótt herra Hegel væri þungbrýnn er hann gekk upp að húsinu sínu með pakkann undir hendinni, að vísu hafði Ijóshlífin verið ódýr — en hann haiði þó loks látið verða af því að kaupa hana, það gat dregizt að hann keypti nýja. Hann kastaði pakkanum kæruleysislega frá sér í anddyrinu. Er hann hafði kysst konu sína í kveðjuskyni sagði hann: — Nú er ég bæði þreyttur og svangur. Hann settist í þægilegan stól í dagstofunni og leit yfir blöðin. Hann tók ekki eftir því að frammi í forstofunni heyrðist skrjáfa í bréfi, og varð því hálfhvert við, er hann heyrði konu sína reka upp fagnaðaróp. Svo stóð hún í gættinni: ☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆ — Ó, þú ert alveg dásamlegur eiginmaður, sagði hún. Aldrei hefði ég haldið að þú værir svo smekkvís að geta keypt hann svona einsamall ... einmitt ná- kvæmlega eins og ég hef óslcað mér. Herra Hegel horfði á konu sína, orðlaus af undrun. Hún hafði sett lampaskerminn á höfuðið á sér. .... Hún hélt að þessi undarlegi harmonikkubelgur væri nýtízku hattur. STJÖRNUR 27

x

Stjörnur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stjörnur
https://timarit.is/publication/1910

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.