Goðasteinn - 01.09.2022, Page 126
124
Goðasteinn 2022
grænir iðngarðar
Orkídea, samstarfsverkefni um nýsköpun, og sveitarfélagið Rangárþing ytra
undirrituðu viljayfirlýsingu um samstarf um að koma á fót Grænum iðngarði
í sveitarfélaginu. Grænn iðngarður nær yfir ákvæðið svæði með ólíkum fyr-
irtækjum þar sem fyrirtækin leitast við að ná betri nýtni auðlinda, hreinni
framleiðslu, stuðla að samvinnu fyrirtækja, draga úr loftslagsbreytingum og
mengun ásamt því að fylgja
félagslegum stöðlum, sam-
nýta innviði og öðlast betri
stýringu á áhættu. Grænn
iðngarður er liður í því að
byggja upp hringrásarkerfi
í framleiðslu, sem byggist á
því að lágmarka úrgang og
hámarka nýtingu auðlinda.
Jafnframt gefa iðngarðar,
grænir sem aðrir, færi á
sameiginlegum innkaup-
um orku og þjónustu, sem
er hagfellt fyrir einstök
fyrirtæki iðngarðsins.
Orkídea og Rangárþing
ytra munu vinna sameiginlega að kortlagningu á heppilegri atvinnustarfsemi
og viðskiptatækifærum sem gætu átt heima innan Græns iðngarðs, kortlagn-
ingu hindrana og kynningu á möguleikum Græns iðngarðs. Orkídea mun leita
upplýsinga og gagna sem geta nýst verkefninu og aðstoða sveitarfélagið í undir-
búningi þess. Rangárþing ytra mun fyrir sitt leyti stýra skipulagsvinnu og sýn
fyrir garðinn. Aðilar yfirlýsingar munu hafa samvinnu um að útvega fjármagn
til stofnunar garðsins með umsóknarvinnu og/eða samtölum við opinbera aðila
og fjárfesta.
Skoðuð verða sérstaklega verkefni á sviði nýsköpunar í matvælaframleiðslu,
líftækni og sjálfbærni sem gætu átt heima í Grænum iðngarði.
rangárþing ytra fær jafnlaunavottun
Rangárþing ytra hlaut á árinu 2022 jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðl-
inum ÍST 85:2012. Meginmarkmið jafnlaunavottunar er að vinna gegn kyn-
bundnum launamun og stuðla að jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði. Með jafn-
launavottuninni hefur Rangárþing ytra öðlast heimild Jafnréttisstofu til að nota
Sveinn Aðalsteinsson og Jón Valgeirsson við undirritun
viljayfirlýsingar um Græna iðngarða í Rangárþingi ytra