Bókatíðindi - 01.11.2024, Blaðsíða 26
IB
Gröf minninganna
Höf: Bjarki Bjarnason
Fátækt og rótleysi setja sterkan svip á æsku ungrar
stúlku og lesandinn horfir á heiminn með hennar
augum . Við sögu kemur einnig eftirminnileg
þátttaka nokkurra Íslendinga í borgarastyrjöldinni
á Spáni á 4 . áratug síðustu aldar . Undarleg tilviljun
veldur því að stúlkan fær stórt hlutverk í kvikmynd
við upphaf íslenska kvikmyndavorsins .
288 bls .
Bókaútgáfan Sæmundur
KIL
Hefndir
Höf: Guðjón Baldursson
Maður fer austur fyrir fjall um hávetur og kveikir í
sumarbústað þar sem einn lætur lífið . Ári síðar er
ung kona numin á brott á íslensku farþegaskipi og
flutt til Brasilíu . Hún sleppur og mannræninginn
finnst myrtur . Þriggja manna teymi lögreglumanna
reynir að leysa gátuna . Hefndir er sérlega vel skrifuð
sakamálasaga um skipulagða glæpastarfsemi .
284 bls .
Bókaútgáfan Sæmundur
KIL
Heim fyrir myrkur
Höf: Eva Björg Ægisdóttir
Heim fyrir myrkur fékk Blóðdropann – Íslensku
glæpasagnaverðlaunin 2023 . Eva Björg hefur hlotið
fjölda viðurkenninga og verðlauna fyrir glæpasögur
sínar, bæði heima og erlendis . Þær sitja á metsölulistum
víða um heim og fá hvarvetna frábæra dóma .
„Eva Björg er í fremstu röð íslenskra
glæpasagnahöfunda .“ The Times .
391 bls .
Veröld
IB
Himintungl yfir heimsins ystu brún
Höf: Jón Kalman Stefánsson
Árið 1615 skrifar presturinn Pétur um atburði
sem hafa skekið sveitina á Brúnasandi, um ástina,
mennskuna og ábyrgðina sem við berum hvert á öðru .
Á ystu rönd heimsins blása alþjóðlegir vindar og
flytja með sér nýja heimsmynd, hugmyndir og bækur,
enskar duggur, spánska hvalfangara og tilskipanir frá
konunginum . Og penninn er beittari en sverðið .
360 bls .
Benedikt bókaútgáfa
IB RAF HLB
Hittu mig í Hellisgerði
Höf: Ása Marin
Bráðskemmtileg og rómantísk vetrarsaga . Jólin hafa
verið eyðilögð fyrir Snjólaugu . Barnsfaðir hennar
ætlar að vera erlendis með dóttur þeirra í þrjár
heilar vikur yfir hátíðarnar og Snjólaug sér fram á
afar einmanalegt aðfangadagskvöld . En þá fær hún
hugljómun: Hún ætlar að finna ástina í tæka tíð
fyrir klukknahringinguna í Ríkisútvarpinu .
265 bls .
Forlagið - Vaka-Helgafell
SVK
Hótelsumar
Höf: Gyrðir Elíasson
Skáldsaga sem var einskonar forsmekkur að hinum
rómaða þríleik, Sandárbókinni, Suðurglugganum
og Sorgarmarsinum. Í Hótelsumri snýr sögumaður
aftur á heimaslóðir eftir erfiðan skilnað og
reynir að ná sambandi við sjálfan sig að nýju .
Bókin hefur lengi verið ófáanleg en kemur nú
út í nýrri ritröð af verkum höfundarins .
112 bls .
Dimma
IB
Hulda
Höf: Ragnar Jónasson
„Hulda er ein af hinum miklu harmsögulegu hetjum
nútímaglæpasagna,“ segir Sunday Times . Hulda er
ný bók, forleikur að bókunum um þessa stórkostlegu
persónu Ragnars Jónassonar sem lesendur þekkja
úr Dimmu, Drunga og Mistri . Bálkurinn um hana
hefur farið sigurför um heiminn og nú hefur
verið gerið sjónvarpsþáttaröð eftir Dimmu .
248 bls .
Veröld
RAF HLB
Hún gengur í myrkri
Höf: Kolbrún Valbergsdóttir
Les: Sigríður Láretta Jónsdóttir
Undir friðsælu yfirborði smábæjarins Þorlákshafnar
leynist þreifandi myrkur . Lára þarf að kafa ofan í djúp
leyndarmál bæjarbúa og rífa af gömlum sárum til að
leysa ráðgátuna um heyrnarlausa stúlku sem hvarf með
húð og hári . En hvað ef lausnin er nær en virðist?
Storytel
B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 4 GOR Gormabók HSP Harðspjalda bók HLB Hljóðbók IB Innbundin bók KIL Kilja RAF Rafbók G Sveigjanleg kápa26
Skáldverk ÍSLENSK
Sæmundargata 4, Háskólatorgi, 102 Reykjavík
Þú færð
jólapakkann
hjá okkur
Kíktu í jólaka og notalega
stemningu. Alltaf hei
á könnunni á ka húsinu.
Opið mánudaga-föstudaga 9-17
og allan sólarhringinn
í vefverslun okkar, boksala.is
góð
gjöf