Bókatíðindi - 01.11.2024, Síða 29
IB
Moldin heit
Höf: Birgitta Björg Guðmarsdóttir
Ástin í lífi Karenar deyr . Hún mætir í jarðarförina
óboðin, situr aftast og segir engum hver hún er . En eftir
að hafa borið eina fortíð til grafar skýtur önnur upp
kollinum . Moldin heit fjallar um ástina, listina, sorg og
missi . Hér er á ferðinni feikisterk skáldsaga frá nýrri
og spennandi rödd í íslenskum bókmenntaheimi .
226 bls .
Drápa
SVK RAF
Móðurást: Draumþing
Höf: Kristín Ómarsdóttir
Á sinn einstaka hátt heldur Kristín hér áfram
að segja skáldaða sögu Oddnýjar Þorleifsdóttur
langömmu sinnar á ofanverðri nítjándu öld . Oddný
er á fimmtánda ári en rígheldur í bernskuna .
Jónsmessugleði Setselju frænku hennar opnar augu
hennar fyrir seiðandi heimi fullorðinna kvenna . Fyrsta
bindi sögunnar, Oddný, hlaut Fjöruverðlaunin 2024 .
166 bls .
Forlagið - Mál og menning
IB RAF
Múffa
Höf: Jónas Reynir Gunnarsson
Markús er 33 ára, býr enn hjá föður sínum og
stjúpmóður og heldur sig inni í herbergi á kafi í
heimi tölvuleikja . En einn daginn fær hann pakka
í pósti sem markar skil fyrir þau öll . Áleitin og
grípandi skáldsaga frá snjöllum höfundi, saga um
fjölskyldubönd og vináttu, rými og mörk, frelsi og
hyldýpi – og það hvernig fólk kýs að lifa lífi sínu .
130 bls .
Forlagið - Mál og menning
RAF HLB
Myrkraverk
Náttfarar
Höf: Emil Hjörvar Petersen
Les: Hjörtur Jóhann Jónsson
Í þessari lokabók þríleiksins Myrkraverk gengur hrina
hrottalegra ofbeldisverka yfir Reykjavík og lögreglan
stendur ráðþrota frammi fyrir voðanum, í loftinu
liggur ára óhugnaðar og ljóst er að eitthvað hræðilegt
er í vændum . Tvíeykið Halldór og Magga þurfa að beita
allri sinni reynslu til að halda lífi og finna svör .
Storytel
RAF HLB
Ný byrjun í Höllinni
Höf: Sigrún Elíasdóttir
Les: Sólveig Guðmundsdóttir og Berglind Alda
Ástþórsdóttir
Kvikmyndatökulið flykkist inn í litla þorpið Eyravík
og setur allt á annan endann . Með Trausta sér við
hlið þarf Saga að tryggja að allt gangi upp - og í
leiðinni kynnast þau tvö betur en nokkru sinni áður .
Emilía kemur til þorpsins á flótta undan kulnandi
ástarsambandi . Þetta átti að vera stundarflótti
en hver veit, kannski er þetta ný byrjun?
Storytel
IB
Næstsíðasta líf Jens Ólafssonar Olsen
Höf: Bragi Páll Sigurðarson
Jens Ólafsson Olsen býr við hrakandi heilsu .
Hann gerir sitt besta til þess að koma sér á réttan
kjöl en þegar hann reynir óhefðbundnar lausnir
hefur það óvæntar og óvelkomnar afleiðingar .
„Bragi Páll er tabúmeistari landsins, nautabani
grínsins! Ég er enn hlæjandi .“ Steinar Bragi
204 bls .
Sögur útgáfa
KIL
Ógeðslegir hlutir
Höf: Sunneva Kristín Sigurðardóttir
Pardusinn, fiðraða veran, Jean-Luc, Marcelo og
Paulinho ferðast hér um innri lönd og kanna hið
ógreinilega og óþægilega - það sem tengir okkur saman
og slítur að lokum í sundur, meltir og skítur .
67 bls .
Pirrandi útgáfa
KIL
Óljós
Höf: Geir Sigurðsson
Þetta er saga sem var skrifuð til þess að hún
yrði ekki birt og myndi gleymast .
201 bls .
Bókaútgáfan Sæmundur
B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 4 29GOR Gormabók HSP Harðspjalda bók HLB Hljóðbók IB Innbundin bók KIL Kilja RAF Rafbók G Sveigjanleg kápa
Skáldverk ÍSLENSK
EINBEITING
OG MINNI.
Lestur krefst
athygli og
eflireinbeitingu
og eftirtekt.