Bókatíðindi - 01.11.2024, Blaðsíða 32
SVK RAF
Vatnið brennur
Höf: Gunnar Theodór Eggertsson
Gríma er komin austur til að spila á Eistnaflugi en
ferðin reynist vendipunktur í lífi hennar . Margslungin
og spennandi hrollvekja með sögusvið sem spannar
Ísland samtímans jafnt sem Svíþjóð hippatímans en
auk þess er samband mannskepnunnar við tónlist
skoðað frá óvæntum og oft myrkum hliðum .
421 bls .
Forlagið - Vaka-Helgafell
KIL
Veðurfregnir og jarðarfarir
Höf: Maó Alheimsdóttir
Veðurfræðingurinn Lena ferðast um tíma og rúm
í leit að sátt við lífið og fortíðardrauga . Íslenskar
veður- og náttúrulýsingar eru aðalhrynjandi sögunnar
og í þeim endurspeglast tilfinningar og ástarmál
veðurfræðingsins . Saga þriggja kynslóða sem gerist á
þremur stöðum: Íslandi, Frakklandi og Póllandi .
220 bls .
Ós Pressan
KIL
Viðkomustaðir
Höf: Ásdís Ingólfsdóttir
Hér segir frá Lóu sem fóstruð er upp í hrakningi á
19 . öld og berst fyrir veðri og vindum vestur á sléttur
Kanada . Sagan er full af ævintýrum og raunum,
sigrum og ósigrum . Haldreipi Lóu er minningin
um óskylda langömmu, nöfn sem eiga sér engin
andlit lengur og þráin eftir samastað og rótfestu í
tilveru sem er ekki nema í meðallagi velviljuð .
Bókaútgáfan Sæmundur
KIL RAF
Eddumál #6
Voðaverk í Vesturbænum
Höf: Jónína Leósdóttir
Hin vinsæla Edda á Birkimelnum snýr aftur! Hver
ræðst á dreng á grunnskólaaldri og skilur hann
eftir stórslasaðan í hjólageymslu við Tómasarhaga?
Svoleiðis ráðgátu er augljóslega ekki hægt að
treysta lögreglunni einni til að leysa og hin
nýstofnaða Vesturbæjarvakt, með Eddu í broddi
fylkingar, tekur málið upp á sína arma .
300 bls .
Forlagið - Mál og menning
RAF HLB
Völundur
Höf: Steindór Ívarsson
Allt bendir til þess að Árni Sigríðarson hafi stytt
sér aldur, en þegar Rúna og Hanna kafa dýpra í líf
hans reynist ekkert eins og það sýnist . Eftir því sem
þær rekja upp sívaxandi vef leyndarmála og lyga
leiða draugar fortíðar þær á kalda slóð morðs sem
stendur Rúnu nær en hana hefði grunað . Völundur
er önnur bókin um lögreglukonuna Rúnu .
441 bls .
Storytel
IB RAF HLB
Þegar sannleikurinn sefur
Höf: Nanna Rögnvaldardóttir
Bergþóra, húsfreyja í Hvömmum, er nýlega orðin
ekkja og nýtur þess að ráða sér sjálf . Þegar ung
kona finnst látin á lækjarbakka áttar Bergþóra sig
á því að henni hafi verið drekkt . Einhvers staðar
leynist morðinginn og þegar sýslumaðurinn tekur
að yfirheyra vitni og grunaða verður ljóst að flestir
hafa eitthvað að fela – ekki síst Bergþóra sjálf .
240 bls .
Forlagið - Iðunn
SVK
Þín eru sárin
Höf: Þórdís Þúfa
Einlæg og ögrandi skáldævisaga þar sem
höfundur fjallar um eldfimt málefni af áræðni og
hispursleysi . Tímabær og mikilvæg bók .
Þórdís Þúfa hefur hefur hlotið mikið lof
fyrir verk sín, sem hafa m .a . verið gefin út á
ensku og þýsku, auk þess sem ljóð hennar
hafa birst í tímaritum víða um heim .
264 bls .
Þúfan
RAF HLB
Öskrið
Höf: Anna Margrét Sigurðardóttir
Les: Þórunn Lárusdóttir
Ekkert bendir til þess að dauða Freyju hafi borið að
með saknæmum hætti - ekkert nema rósirnar og
samúðarkveðjan . Skömmu síðar lyppast umdeildur
þingmaður niður í mathöll í Reykjavík og liggur fyrir
dauðanum . Læknarnir finna enga orsök . Ofan á
þetta erfiða sakamál þarf rannsóknarlögreglukonan
Bergþóra að takast á við eigin djöfla .
Storytel
B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 4 GOR Gormabók HSP Harðspjalda bók HLB Hljóðbók IB Innbundin bók KIL Kilja RAF Rafbók G Sveigjanleg kápa32
Skáldverk ÍSLENSK
SLÖKUN.
Lestur veitir hvíld frá
raunveruleikanum, dregur úr
streitu og hefur róandi áhrif.