Bókatíðindi - 01.11.2024, Page 37
KIL
Lygin
Höf: Eyðun Klakstein
Þýð: Hjálmar Waag Árnason
Æsispennandi færeysk glæpasaga .
Daginn eftir skyndilegt andlát bróður síns fær
Sara Emmudóttir dularfullt bréf . Það verður til þess
að hún fer að kafa í fortíð sem hún hafði flúið . Við
sögu koma meðal annars rokktónleikar í Þórshöfn
tuttugu árum fyrr þar sem ung kona lét lífið .
259 bls .
Ugla
KIL
Lykillinn
Höf: Kathryn Hughes
Þýð: Ingunn Snædal
Frá metsöluhöfundi Bréfsins, Leyndarmálsins og
Minningaskrínisins kemur nú Lykillinn . Ógleymanleg
saga um glataða ást og hræðilegt leyndarmál .
368 bls .
Drápa
IB
Maðurinn sem dó
Höf: Antti Tuomainen
Þýð: Sigurður Karlsson
Jaakko Kaunisma er farsæll sveppabóndi í finnskum
smábæ þar til einn fagran sumardag að líf hans
umturnast . Niðurstöður læknisrannsókna staðfesta
að honum hefur verið byrlað eitur, í smáum
skömmtum á löngum tíma . Hann er dauðvona
aðeins 37 ára gamall . Hefst nú æsispennandi
leit hans að þeim sem vilja hann feigan .
276 bls .
Skrudda
KIL
Morðin á heimavistinni
Höf: Lucinda Riley
Þýð: Arnar Matthíasson
Sjálfstæð skáldsaga eftir höfund metsölubókanna um
systurnar sjö . Nemi í f ínum heimavistarskóla deyr
skyndilega . Skólayfirvöld afgreiða andlátið sem slys en
Jazmine „Jazz“ Hunter er send til að rannsaka málið .
Á sama tíma reynir hún að standast persónutöfra
fyrrverandi eiginmanns síns sem vill að þau taki
saman á ný . En þá fer morðunum að fjölga .
408 bls .
Benedikt bókaútgáfa
KIL
Myrku frúrnar
Höf: Ann Cleeves
Þýð: Ragnar Hauksson
Þegar lík finnst skammt frá afskekktu unglingaheimili
er Vera Stanhope kölluð til . Fórnarlambið er Josh,
starfsmaður á unglingaheimilinu . Í sama mund
kemur í ljós að Chloe, fjórtán ára vistmaður á
heimilinu, er horfin . Vera á erfitt með að trúa því
að hún geti hafa átt aðild að mannslátinu en hún
verður að gera ráð fyrir öllum möguleikum .
439 bls .
Ugla
KIL RAF HLB
Mýrarstúlkan
Höf: Elly Griffiths
Þýð: Eyrún Edda Hjörleifsdóttir
Ruth Galloway er fornleifafræðingur sem býr á
afskekktum stað ásamt köttunum sínum . Þegar
barnsbein finnast er þörf á sérfræðiþekkingu
hennar . Málið er flókið og smám saman dregst
Ruth inn í hættulega atburðarás .
325 bls .
Forlagið - Vaka-Helgafell
SVK
Naustið
Höf: Jon Fosse
Þýð: Hjalti Rögnvaldsson
Óhefðbundin saga sem gerist á þremur sumardögum
og fjallar um náin tengsl þriggja persóna . Bókin
kom fyrst út 1989 og markaði upphafið að velgengni
höfundarins í heimalandinu, en haustið 2023 hlaut
Jon Fosse Nóbelsverðlaunin í bókmenntum .
177 bls .
Dimma
RAF HLB
Nyaxia-bókaflokkurinn
Naðran og vængir næturinnar
Rústirnar og bölvun konungsins
Höf: Carissa Broadbent
Þýð: Herdís M. Hübner
Í vampíruheiminum Nyaxiu blandast saman
átakanleg rómantík, óhugnanlegir galdrar og
óslökkvandi blóðþorsti . Bækur Carissu Broadbent,
Naðran og vængir næturinnar og Rústirnar
og bölvun konungsins, eru fullkomnar fyrir
unnendur sagna um stórhættulega ást og forboðna
rómantík í grimmilegum furðuheimum .
Storytel
SVK
Parísardepurð
Stutt ljóð í lausu máli
Höf: Charles Baudelaire
Þýð: Ásdís R. Magnúsdóttir
Ritstj: Kristín Guðrún Jónsdóttir
Le Spleen de Paris kom út árið 1869, tveimur árum
eftir andlát höfundar . Þar er að finna fimmtíu ljóð
í lausu máli, samin á árunum 1855-1867, flest
birtust upphaflega í dagblöðum og tímaritum .
Verkið átti þátt í að breyta í grundvallaratriðum
viðhorfi til ljóðlistarinnar og hafði umtalsverð
áhrif á skáld innan og utan heimalandsins .
144 bls .
Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur / Háskólaútgáfan
KIL
Persepolis
Höf: Marjane Satrapi
Þýð: Snæfríð Þorsteins
Ógleymanleg uppvaxtarsaga íranska höfundarins
Marjane Satrapi (f . 1969), sem fór sigurför um
heiminn þegar hún kom fyrst út . Spaugilegar
hversdagssenur í lífi höfundar og harmleikur
þjóðar fléttast listilega saman þessari margrómuðu
myndasögu sem lætur engan ósnortinn .
172 bls .
Angústúra
B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 4 37GOR Gormabók HSP Harðspjalda bók HLB Hljóðbók IB Innbundin bók KIL Kilja RAF Rafbók G Sveigjanleg kápa
Skáldverk ÞÝDD