Bókatíðindi - 01.11.2024, Blaðsíða 52
Fræðirit, frásagnir
og handbækur
IB
ADHD í stuttu máli
Lykillinn að skilningi og þroska
Höf: Dr. Edward M. Hallowell
Þýð: Nanna Rögnvaldardóttir
Aðgengileg og fróðleg bók sem fjallar ekki síst um
þá kosti sem geta fylgt röskuninni og hvernig fólk
með ADHD getur dafnað sem best í lífi og starfi .
Hér útskýrir hinn heimsþekkti ADHD-sérfræðingur,
metsöluhöfundur og TikTok-stjarna, dr . Edward
M . Hallowell, vísindin að baki ADHD um leið og
hann hrekur mýtur og leiðréttir misskilning .
224 bls .
Forlagið - Vaka-Helgafell
IB
Alkíbíades
Höf: Platon
Þýð: Hjalti Snær Ægisson
Glæsimennið Alkíbíades er í þann mund að sigra
heiminn þegar hann hittir heimspekinginn Sókrates
á förnum vegi . Þeir taka tal saman og þegar upp er
staðið þarf stjórnmálamaðurinn ungi að endurmeta
flest það sem hann taldi sig vita . Þessi snjalla samræða
er fyrirtaks byrjunarreitur í heimspeki Platons .
244 bls .
Ófelía
KIL
Almanak Háskóla Íslands 2025
Höf: Gunnlaugur Björnsson og Páll Jakobsson
Í almanaki 2025 er grein um fjarreikistjörnur, en
það eru reikistjörnur utan okkar sólkerfis . Með
þróaðri mælitækni er nú auðvelt að finna þær og
nálgast staðfestur fjöldi 6000 . Einnig er fjallað
um dvergstjörnur í geimnum . Loks er pistill um
fjarlægðarmælingar í geimnum og fjarlægustu
fyrirbæri sem fundist hafa í alheimi .
96 bls .
Háskólaútgáfan
KIL
Almanak HÍÞ 2025
Ásamt árbók 2023
Höf: Arnór Gunnar Gunnarsson og Gunnlaugur
Björnsson
Hér er 151 . árgangur Almanaks Hins íslenska
þjóðvinafélags ásamt árbók . Auk dagatals flytur
almanakið margvíslegar upplýsingar, svo sem um
sjávarföll og gang himintungla . Almakinu fylgir
Árbók 2023 þar sem rakin eru helstu tíðindi
ársins á ýmsum sviðum íslensks mannlífs .
Háskólaútgáfan
SVK
Andvari 2024
Ritstj: Ármann Jakobsson
Aðalgrein Andvara 2024 er æviágrip Ragnhildar
Helgadóttur, fv . ráðherra, eftir sagnfræðingana
Rósu Magnúsdóttur og Ragnheiði Kristjánsdóttur .
Ragnhildur var kjörin á þing aðeins 26 ára og sat
á þingi í alls 23 ár . Hún var fyrsta konan sem var
ráðherra í heilt kjörtímabil og ferill hennar er um
margt merkilegur . 10 aðrar greinar eru í riti ársins .
235 bls .
Háskólaútgáfan
SVK
Austur, vestur og aftur heim
Höf: Jóhann Páll Árnason
Ritstj: Ágúst Þór Árnason og Geir Sigurðsson
Greinarnar níu eru þverskurður af rannsóknum á sviði
félagsfræði, siðmenningargreiningu og heimspeki
sem Jóhann Páll Árnason hefur lagt stund á . Auk
greinanna ritar Jóhann endurminningakafla þar
sem hann gerir litríku lífshlaupi sínu skil, fjallar
jafnt um áhrifavalda sína sem stjórnmálaskoðanir
og setur í sögulegt samhengi .
Hið íslenska bókmenntafélag
SVK
Barnavernd á Íslandi – fyrr og nú
Ritstj: Sigrún Harðardóttir, Halldór S. Guðmundsson
og Hrefna Friðriksdóttir
Fræðirit um þróun barnaverndar á Íslandi í
hugmyndafræðilegu og sögulegu ljósi, lagaþróun,
starfsaðferðir, úrræði og stofnanir í barnavernd .
Í bókinni er einnig varpað upp svipmyndum úr
barnaverndarstarfinu með viðtölum við fólk sem hefur
starfað eða haft aðkomu að barnavernd . Áhersla er lögð
á að bókin sé í senn fagleg, fræðileg og persónuleg .
Háskólaútgáfan
SVK
Berlínarbjarmar
Langamma, David Bowie og ég
Höf: Valur Gunnarsson
Sagnfræðingurinn Valur Gunnarsson kryfur hér
sögu hinnar margslungnu Berlínar og nágrennis
frá mörgum hliðum allt frá tímum keisara,
nasista, heimsstyrjalda og svo aðskilnaðar til falls
múrsins . Við sögu koma meðal annarra hin þýska
langamma höfundar, goðsögnin David Bowie
og ýmsir lykilleikmenn í sögu Evrópu .
448 bls .
Salka
KIL
Besti vinur aðal
Höf: Björn Þorláksson
Blaðamenn sem beittir hafa verið grímulausu ofbeldi
leggja spil sín á borðið . Söguritari, Björn Þorláksson,
afhjúpar sjálfur óeðlileg inngrip valdhafa og spilltra afla
á löngum ferli sínum í blaðamennsku . Einnig er rætt
við þolendur og ýmsa sérfræðinga um spillingu .
352 bls .
Bókaútgáfan Sæmundur
B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 4 GOR Gormabók HSP Harðspjalda bók HLB Hljóðbók IB Innbundin bók KIL Kilja RAF Rafbók G Sveigjanleg kápa52
Fræðirit, frásagnir og handbækur
Fræðirit, frásagnir og handbækur