Bókatíðindi - 01.11.2024, Blaðsíða 60
SVK
Tímanna safn
Kjörgripabók
Ritstj: Halldóra Kristinsdóttir og Hildur Ploder
Vigfúsdóttir
Fjallað er í máli og myndum um kjörgripi sem
varðveittir eru í Landsbókasafni Íslands –
Háskólabókasafni . Þeir endurspegla fjölbreytta
safneign og er t .a .m . fjallað um bækur, handrit,
einkaskjöl, tímarit og hljómplötur . Bókin er
gefin út í tilefni af 30 ára afmæli Þjóðarbókhlöðu
en 1994 sameinuðust Landsbókasafn og
Háskólabókasafn undir einu þaki .
220 bls .
Hið íslenska bókmenntafélag
IB
Tíminn minn 2025
Höf: Björg Þórhallsdóttir
Þýð: Herdís H. Húbner
Hlý og falleg myndskreytt dagbók eftir íslensku
listakonuna Björgu Þórhallsdóttur . Ómissandi dagbók
fjölda íslenskra kvenna undanfarin 12 ár .
149 bls .
Bókafélagið
IB
Tónar útlaganna
Þrír landflótta tónlistarmenn sem mótuðu íslenskt
menningarlíf
Höf: Árni Heimir Ingólfsson
Bókin fjallar um tónlistarmennina Róbert Abraham,
Heinz Edelstein og Victor Urbancic sem mótuðu
íslenskt menningarlíf eftir flótta frá heimalöndum
sínum undan klóm nasismans . Hér tókst þeim
að lyfta tónlistarmenningu þjóðarinnar á nýtt
stig af elju og smitandi ákafa . Tímamótaverk um
mikilvægan þátt í íslenskri menningarsögu .
360 bls .
Hið íslenska bókmenntafélag
IB
Um skáldskap eftir Jónas Hallgrímsson
Höf: Hannes Pétursson
Greinar, nýjar og eldri, um Jónas og athyglisverða staði
í kvæðum hans – skrifaðar af því næmi og listfengi
sem einkennir skrif Hannesar Péturssonar jafnt í
lausu máli sem bundnu . Það er bókmenntaviðburður
þegar eitt helsta ljóðskáld samtímans skrifar
um verk dáðasta skálds íslenskrar sögu .
407 bls .
Fagurskinna
IB
Lærdómsrit Bókmenntafélagsins
Um uppeldisfræði
Höf: Immanuel Kant
Þýð: Skúli Pálsson
Ritið er aðgengilegt og sýnir hvernig Kant beitti
siðfræði sinni í hversdagslegum aðstæðum og sem
hjálp við að hugsa um uppeldi og menntun barna,
samskipti foreldra og kennara við börn og andrúmsloft
á heimili . Í þessu stutta verki hittir Kant iðulega
naglann á höfuðið um álitamál sem allir standa
frammi fyrir einhvern tímann á lífsleiðinni .
150 bls .
Hið íslenska bókmenntafélag
RAF
Undirstaðan
Efnafræði fyrir framhaldsskóla
Höf: Ásdís Ingólfsdóttir
Yfirgripsmikil gagnvirk vefkennslubók sem er ætlað
að veita nemendum í fyrstu áföngum í efnafræði
trausta undirstöðuþekkingu í greininni . Í bókinni
er farið yfir helstu grunnatriði hefðbundinnar
efnafræði sem býr nemendur undir frekara
nám í faginu og skyldum greinum .
IÐNÚ útgáfa
IB
Útkall í ofsabrimi
Höf: Óttar Sveinsson
Allar Útkallsbækur Óttars Sveinssonar hafa vermt
efstu sæti metsölulistanna í 30 ár . Hér er greint frá
baráttu sjö manna upp á líf og dauða þegar Goðinn
sekkur í ofsabrimi í Vöðlavík (1994) . Mennirnir
voru að gefast upp þegar þyrla birtist í ofsaveðrinu .
Eftir það gerast óvæntir hlutir sem enda með einni
tryllingslegustu flugferð Íslandssögunnar .
Útkall ehf.
KIL
Vesturlönd í gíslingu
eða harmleikur Mið-Evrópu
Höf: Milan Kundera
Þýð: Friðrik Rafnsson
Þessi litla en innihaldsríka bók geymir tvær ritgerðir
eftir Milan Kundera sem mikla athygli hafa vakið
og eiga brýnt erindi í samtíma okkar .
84 bls .
Ugla
B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 4 GOR Gormabók HSP Harðspjalda bók HLB Hljóðbók IB Innbundin bók KIL Kilja RAF Rafbók G Sveigjanleg kápa60
Fræðirit, frásagnir og handbækur
HEILAÞJÁLFUN.
Lestur heldur heilanum virkum,
þjálfar vitræna virkni og dregur
úr hættu á andlegri hnignun.